Smárahverfi, Lindarhverfi og Dalvegurinn háhýsabyggð?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Smárahverfi, Lindarhverfi og Dalvegurinn háhýsabyggð?

Postby ValliFudd » Thu 14. Feb 2008 11:39

Þetta rakst ég á, einhver krotaði þetta á bloggið sitt eftir að Gunnar Birgis virtist ekki vera að spá mikið í neinum háhýsum á þessu svæði, einhver hafi bara nefnt það einhverntíman :lol: Það er kannski ekki eins gott að búa í kópavogi og ég hélt :shock:

Fréttin:
Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2008 | 05:30
Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn?

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru uppi hugmyndir um að rífa verslunarkjarnann við Smáratorg í Kópavogi og reisa háhýsi í hans stað. Ekki er talið líklegt að þetta verði gert í nánustu framtíð. Verslunarkjarninn við Smáratorg hefur verið starfræktur í áratug.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir, spurður um þetta, að manna á millum hafi verið rætt að rífa torgið og byggja háhýsi í nágrenni turnsins sem nýlega er risinn við Smáratorgið.

Ekki hafi þó komið fram tillaga frá eiganda um þetta og málið því ekki til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum.


Og hér er póstur sem á að hafa verið sendur milli manna Samfylkingarinnar..

Eftirfarandi póstur er af póstlista Samfylkingarinnar í Kópavogi:
„Á fundinum var rætt um skipulagsmál á Glaðheimasvæðinu og raunar í öllum Kópavogsdalnum. Hugmyndir meirihlutans um uppbyggingu þar til viðbótar við það sem þegar er komið eru tröllvaxnar svo ekki sé meira sagt. Meirihlutinn virðist hafa mótað stefnu um háreysta byggð á þessu svæði og sem dæmi má nefna að gert er ráð fyrir allt að 9 turnum eins og þeim sem þegar er risinn við Smáratorg. Sumir þeirra verða jafnvel tvöfalt hærri en sá turn. Byggingamagn mun verða gríðarlegt á Glaðheimasvæðinu og sunnan við Smáralindina og nú er einnig að fara af stað skipulag við Dalveg, frá Málningu og upp úr. Þar er gert ráð fyrir 60 þús fermetrum til viðbótar við Brimborgarhúsið. Já, eins og ein Smáralind. Þetta hefur mikil áhrif á umferð og verður Dalvegur fjórfaldur og Reykjanesbrautin 12 akreinar! Þarna verður mesta umferð á Íslandi. Umferðarhávaði og mengun af völdum bílaumferðar mun stóraukast og þetta allt hefur veruleg áhrif á lífsgæði þúsunda Kópavogsbúa sem búa í Lindum, Smára og suðurhlíðum Kópavogs. Í umræðunum á fundinum lagði bæjarstjóri áherslu á að mikið lægi á að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd. Þau hús sem ekki yrðu byggð þarna risu í öðrum sveitarfélögum! Mengun og hávaða frá umferð taldi hann auðvelt að leysa með því að banna nagladekk, söndun og draga úr umferðarhraða. Á mánudagsfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi voru þessi mál til umræðu og mætti fjölmenni á fundinn og ljóst að bæjarbúar munu ekki taka þessu brjálæðislegu hugmyndum þegjandi og hljóðalaust. Málið er nú að fara fyrir samvinnunefnd um skipulag höfuðborgarsvæðisins og þar mun fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi mæla gegn þeim. Þess má geta að bæjarstjóri sagði að ef fulltrúi Samfylkingarinnar í samvinnunefndinni greiddi atkvæði gegn tillögu meirihlutans hér í Kópavogi þá væri það ekkert annað en hryðjuverk gegn Kópavogi. Þannig er nú veruleiki hans.“
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Jónas » Thu 14. Feb 2008 15:04

Vonandi fer þetta í gegn.

Háhýsi ftw.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Thrullerinn » Thu 14. Feb 2008 15:11

Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan.

Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í
kringum Smáralindina er ein djúp skita.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby íbbi_ » Thu 14. Feb 2008 15:15

ég er að flytja í kópavoginn í næstu viku..


sem flest háhýsi
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby bimmer » Thu 14. Feb 2008 15:35

Thrullerinn wrote:Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan.

Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í
kringum Smáralindina er ein djúp skita.


Merkilegt þá hvað fólk sækist í að búa þarna :?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Thu 14. Feb 2008 15:37

Ég bý/bjó í smárahverfinu og mér fannst það bara alveg mega fínt :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Aron Andrew » Thu 14. Feb 2008 15:41

Þetta á eftir að verða virkilega flott þegar að allar þessar vegaframkvæmdir verða búnar, en eins og er þá er þetta vonlaust á álagstímum í umferðinni, maður er stundum fastur þarna í fáranlega langann tíma!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby demi » Thu 14. Feb 2008 15:42

Ég bý í digraneshverfinu semsagt rétt hjá HK húsinu og þar og það er mjög fínt
demi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 580
Joined: Mon 05. Feb 2007 20:43

Postby Axel Jóhann » Thu 14. Feb 2008 15:43

Hættiði þessu röfli og komið til eyja. :lol: Umferðateppa einu sinni á ári,,, þjóðhátíð! 8)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby bimmer » Thu 14. Feb 2008 16:20

Axel Jóhann wrote:Hættiði þessu röfli og komið til eyja. :lol: Umferðateppa einu sinni á ári,,, þjóðhátíð! 8)


Eina ástæðan til að fara til eyja :wink:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby xtract- » Thu 14. Feb 2008 17:05

fínt að búa í lindarhverfinu er ekki nema 10-15mín uppí borgó ef allt gengur vel ;)
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby Jón Ragnar » Thu 14. Feb 2008 17:47

Finnst þetta hljóma eitthvað svo svakalega kjánalega og ótrúlegt e-ð :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby Turbo- » Thu 14. Feb 2008 17:57

ég styð þetta ekki
alveg er nú næg umferðin hérna upp brekkuna heima hjá mér og það er verið að spá í að byggja háhýsi uppi á hæðinni
það eru fullt af krökkum hérna í hverfinu og ef það bætast við þessir 1000bílar sem áttu að koma þá breytist þetta hverfi í umferðarteppu allan daginn og tala nú ekki um þegar nokkuð margir fara að þrusa upp þessa brekku, þetta er 30 gata útaf skólakrökkum og öðrum kökkum en fólk neglir hérna upp á 70-80km/h
Image
User avatar
Turbo-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 898
Joined: Sat 18. Mar 2006 17:17

Postby Gunni » Thu 14. Feb 2008 17:58

bimmer wrote:
Thrullerinn wrote:Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan.

Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í
kringum Smáralindina er ein djúp skita.


Merkilegt þá hvað fólk sækist í að búa þarna :?


Ég bý í Lindum og vinn í Turninum og ég er bara mega sáttur! 8)
Ég skil ekkert í fólki sem er að setja útá þetta hverfi :lol:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby IceDev » Thu 14. Feb 2008 19:49

Axel Jóhann wrote:Hættiði þessu röfli og komið til eyja. :lol: Umferðateppa einu sinni á ári,,, þjóðhátíð! 8)



Það sem ég myndi gera frekar en að fara til eyja væri að bæta D fyrir framan hana
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests