Fjallgöngugarpar athugið..

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Fjallgöngugarpar athugið..

Postby ValliFudd » Wed 06. Feb 2008 19:29

http://www.66north.is/toppadu-med-66-n

Ég er að spá í að skella mér, vildi bara láta fólk vita af þessu ef einhver hefur áhuga, heldur seint ég veit en samt :) Kynningarfundurinn er semsagt eftir hálftíma.. kl. 20:00 í Faxafeni 12..

Toppaðu með 66°Norður

Hvannadalshnjúkur66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun sem ætti að gera flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúki. Dagskrá áætlunarinnar byggist ekki eingöngu á göngum heldur er líka í boði fræðsla um hina ýmsu þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við fjöll og firnindi. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa í áranna rás verið leiðandi í því að bjóða upp á ferðir á Hvannadalshnúk og önnur fjöll landsins og búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á því hvernig best sé að ná takmarkinu – toppnum – hverju sinni.

66°Norður hafa verið leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu alvöru útivistarfatnaðar sem nauðsynlegur er hverjum þeim sem hyggur á fjallgöngur og útivist. Þáttakendur fá þáttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistafatnaði í verslunum 66°Noður á meðan æfingaáætlunin stendur yfir (eingöngu vörur framleiddar af 66° Norður). Að neðan má kynna sér dagskrána sem er sérstaklega hugsuð með það fyrir augum að sem flestir hafi tök á því að vera með.

Verð á heildarpakkanum er 29.900 krónur. Fyrir þá sem langar að vera með en telja sig ekki þurfa á þéttu æfingaprógrammi að halda er upplagt að skella sér á fjöllin sem hægt er að kaupa hvert fyrir sig. Verð fyrir hvert fjall er 4.900 kr nema fyrir Hvannadalshnúk sem kostar 12.500 kr. Til þess að fá Hnúkinn á þessi verði þarf að hafa farið amk á tvö af hinum fjöllunum.

Kíktu á kynningarfundinn 6. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum 66°Norður í Faxafeni 12.

Dagsetning Viðburður
6. febrúar Kynningarfyrirlestur, dagskráin, þjálfun. Ferðakynning
9. febrúar Esja (upp að steini)
13. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
20. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
27. febrúar Fræðsla, fatnaður og næring Ferðakynning
1. mars Skarðsheiði
5. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
12. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
26. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
29. mars Hekla
2. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Vífilsfell
9. apríl Fræðsla, jöklaferðir, búnaður og tækni. Ferðakynning
12. apríl Eyjafjallajökull
16. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
23. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
30. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
3. maí Snæfellsjökull
7. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Móskarðshnúkar
14. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
21. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Hengill
28. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
31. maí Hvannadalshnúkur fyrri hópur
4. júní Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
7. júní Hvannadalshnúkur seinni hópur
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Wed 06. Feb 2008 21:12

ok, stuttur fyrirvari :lol: En ég bjóst nú reyndar ekki við neinu svari..

En DEM, það var ekkert smááá mikið af fólki :shock: Ég skráði mig í allan pakkann 8)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Þórir » Wed 06. Feb 2008 21:28

Been there done that.

Gott framtak, það er gaman að hafa klárað þenna tind. Fullt skemmtilegt að gerast í fjallamennsku um þessar mundir.

Kv.
Þórir
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 71 guests