Page 1 of 6

Hvaða fartölvu mælir þú með.............

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 22:23
by ömmudriver
Sælir strákar og Inga,

þar sem að IBM T42 fartalvan mín ákvað að deyja núna nýlega þá þarf ég að kaupa mér nýja tölvu og skal það vera fartalva sökum plássleysis.

Mig langar að kaupa IBM aftur þar sem að ég hef góða reynslu af þeim en þær eru í dýrari kantinum og ég nota tölvunar mínar mjög takmarkað eins og er þar sem að ég er ekki í námi.

Þannig að spurningin er: Hvaða fartölvu mælir þú með og af hverju eða hvað ætti ég að forðast/ leita eftir í fartölvu nú til dags ??

Með von um góð svör,
Arnar Már

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 22:56
by Kristjan
Apple Macbook Pro

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:01
by Saxi
Kristjan wrote:Apple Macbook Pro


Second that

Eða prufa þessa nýju, Macbook Air

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:02
by bimmer
Haltu þig bara frá Acer.

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:03
by Kristjan
bimmer wrote:Haltu þig bara frá Acer.


x2 og tölvulistanum eins og hann leggur sig...

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:08
by JonHrafn
HP hefur reynst mér ágætlega.

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:10
by BjarkiHS
Ég er með Toshiba Satellite a-210xxx og hún er fín

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:12
by Steini B
Ég prófaði einhverntímann fartölvu sem var með Harmon/Kadron hljóðkerfi...

Fartölva með venjulegum hátölurum hljómaði eins og nokia 5110 sími við hliðiná þessari tölvu....


Held að það sé eina fartölva sem mig hefur langað í, aðalega útaf hátölurunum.... :lol:

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:22
by Aron Andrew
Macbook Pro eða ekki Pro

Þetta er bara svona einu sinni smakkað þú getur ekki hætt dæmi, æðislegar tölvur!

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:27
by Jónas
Mac = :gay:

Bara leiðinlegt að vinna á þessar vélar. Tískubóla sem á eftir að springa eins og kauphöllin.

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:31
by Aron Andrew
Jónas wrote:Mac = :gay:

Bara leiðinlegt að vinna á þessar vélar. Tískubóla sem á eftir að springa eins og kauphöllin.


Hvað er svona slæmt við að vinna á þær, koma með rök!

Það er allt notandaviðmót betra, forrit í flestum tilfellum MUN þægilegri, þær eru kúl og svo eru ekki ennþá komnir vírusar sem valda einhverju veseni.

Þetta + góðir skjáir og öflug batterí er allavegana nóg til að ég fæ mér ekki pc aftur, ef ég þarf að runna Windows þá bara skelli ég því í Maccann.

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:36
by Dr. E31
Kristjan wrote:
bimmer wrote:Haltu þig bara frá Acer.


x2 og tölvulistanum eins og hann leggur sig...


Hvað er að Acer? Og hvað er að Tölvulistanum?
Ég hef bara fengið góða þjónustu og góðar vörur frá þeim.

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:39
by Mazi!
Ég er að vinna í Tölvutek, Við erum með Sony, Acer ,Asus og packardbell mæli eindregið með Sony eða Acer vélunum,

Hvað ertu með mikið peninga budget í þetta og hvað ætlaru að nota tölvuna í ?

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:40
by Gunnar Hnefill
Ég mæli með Mac Book Pro á eina svoleiðis og þetta er algjör græja 8)

PostPosted: Thu 31. Jan 2008 23:42
by Djofullinn
bimma_frík wrote:Ég er að vinna í Tölvutek, Við erum með Sony, Acer ,Asus og packardbell mæli eindregið með Sony eða Acer vélunum,

Hvað ertu með mikið peninga budget í þetta og hvað ætlaru að nota tölvuna í ?
Heyyyy ertu að vinna í tölvutek :P Ég bið að heilsa Dóra, Gísla og Haffa :P