Page 1 of 2

Versti dagur ársins?

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 17:43
by Aron Andrew
Versti dagur ársins er í dag samkvæmt kenningu vísindamannsins Cliff Arnall. Þetta má auðveldlega sjá á jöfnu sem Arnall setti upp fyrir nokkrum árum þar sem veður, skuldir og svikin áramótaheit fara saman, á mánudegi að sjálfsögðu.

Jafnan er gjarnan sett svona upp:

V+(G-g) x TN _____________ M x FN

V þýðir slæmt veður, G er skuldahalinn að loknum jólunum, g eru laun, T tími sem liðinn er frá jólum og N stendur fyrir svikin áramótaheit. M stendur fyrir lítinn þrótt og viljastyrk, og FN löngunina til að grípa til aðgerða.


Eru menn sammála?

http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/200 ... ins_i_dag/

Ég er allavegana nokkuð góður bara! 8) :lol:

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 17:51
by Ingsie
Ég gæti ekki verið betri.. Allavega enn sem komið er :'D

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 17:55
by birkire
Brotið afturljós og leitin að nýju skemmdi minn dag frekar mikið ! Annars gengur hann eins og smurt.

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:11
by maxel
birkire wrote:Brotið afturljós og leitin að nýju skemmdi minn dag frekar mikið ! Annars gengur hann eins og smurt.

Þú gerðir það í gær fíflið þitt.. kannt ekki að bakka :P

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:22
by zazou
Markaðurinn er amk sammála...
http://mbl.is/mm/vidskipti/

ICEX15 niður um 4%, krónan um tæp 2,5%.

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:24
by Kristjan
Minn mánudagur er fínn, byrjaði í skólanum, mætti í alla tíma, fékk að sleppa fyrr úr síðasta tíma.

Mætti svo í vinnuna þar sem vinnuveitandi minn var búinn að gleyma rifrildinu sem við áttum fyrir helgi, (athyglisbrestur.is) þannig að ég er góður bara.

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:28
by arnibjorn
Pretty much með verri dögum sem að ég hef upplifað....

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:34
by BMW_Owner
ég var að vonast til að fá skynjara í benzann minn í dag en það gekk ekki eftir þannig að þetta er far most versti dagur sem ég hef upplifað :lol:

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 18:43
by Kristjan
BMW_Owner wrote:ég var að vonast til að fá skynjara í benzann minn í dag en það gekk ekki eftir þannig að þetta er far most versti dagur sem ég hef upplifað :lol:


Ok þú hefur semsagt lifað frekar uneventful ævi.....


Held að dagarnir sem bræður mínir lentu í sitthvoru lífshættulega slysinu séu mínir verstu.

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:10
by zazou
Vondur dagur fyrir R-listann greinilega :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:13
by Kristjan
zazou wrote:Vondur dagur fyrir R-listann greinilega :lol: :lol: :lol:


ownage! Fyndið að sjá þessa borgarpólitík þetta er eins og sápuópera....

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:24
by Djofullinn
Alveg jafn góður dagur og allir hinir.... 8)

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:31
by Danni
Það versta við þennan dag er að mér er búið að kvíða fyrir morgundeginum... hann verður hell í vinnunni vegna þessu óveðri sem verður frá kvöldinu í kvöld og til ca 3 á morgun...

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:34
by Jón Ragnar
Vondur dagur! :(

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 19:35
by Lindemann
dagurinn var ekkert sérstakur framan af en er að verða bara alveg ágætur og fer batnandi :D