Page 1 of 1

fyrstu myndir af production 5th gen camaro?

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 14:29
by íbbi_
þetta er sona með því fyrsta sem hefur sést af því hvernig bíllin komi til með að lýta út í framleiðslu.. þetta er að ég held offical mynd,

eftir því sem ég kemst næst er ennþá verið að vinna í smáatriðum. (spoilerum, endanlegum framljósum og flr)

það hefur ekki mikið verið gefið út um hvaða vélar og skiptingar bíllin fær, en það litla sem er vitað er að bíllin verður í einhevrri týpuni með ls3 430hp, og á sjálfstæðri afturfjöðrun,

þessi bíll er bygður á sama platformi og Holden monaro (pontiac GTO) og nýjir 4door monaroinn sem top gear voru að prufa, þannig að það má raunverulega vænta virkilega skemmtilegs akstursbíls.. ég hef keyrt GTO og þetta eru lygilega skemmtilegt tæki,

bíllin á myndini er kannski ekki jafn flashý og grái concept bíllin sem við höfum allir séð.. en ef maður horfir framhjá að hann er á minni felgum er bíllin nánast nákvæmlega eins,

áætlað verð á bílnum er í kringum 35þús usd, og hann verður fáanlegur í grunnin með einhevrjum 6gata búning.. og svo eru menn ennþá að bíða eftir því hvort bíllin komi í SS eða Z28 útfærslu. og svo hvað þessir pakkar komi til með að fela í sér..

ég persónulega.. ásamt ansi mörgum á hinum ýsmu spjallborðum óttumst að þeir muni rýra Z28 badge-ið..

upprunalega voru z28 bílarnir nefnilega sona "CSL" camaroar.. með minni vélar sem snérust hærra.. á heavy duty fjöðrun, með lýtin búnað og stórar bremsur.. það finnst mér alltaf kúl concept, en GM hefur hinsvegar verið að hórast dáldið með SS merkið uppá síðkastið og troðið því á allt í framleiðslu í samkepni við SRT chrysler bílana..

hérna er hinsvegar myndin..

mér finnst þetta bara kúl bíll.. 4 sæta coupe með yfir 6L vél og 400hp+ fyrir undir 5m nýtt úr kassanum
Image

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 14:45
by Djofullinn
Ég ætla að kaupa mér svona bíl einhverntíman. Finnst þeir nokkuð vel heppnaðir 8)

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 14:49
by Alpina
Er þetta ekki ..aðeins öðruvísi en sá sem myndir hafa verið birtar áður..

ooooog er ekki að fíla hvíta litinnn,,((eins og ég er hrifinn af hvítu))

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 14:55
by íbbi_
aðalmunurinn á þessum og concept bílnum er að concept bíllin er á 22"+ felgum..

það vantar á þennan bíl afturspoilerinn, með honum og felgunum væri hann alveg eins og concept bíllinn

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 16:01
by HPH
OJ.

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 16:04
by Angelic0-
I dig it....

Ég digga líka Chargerinn... en ég hata Rustang draslið... það er svo overrated eitthvað...

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 16:13
by Danni
Þessi bíll er GEGGJAÐUR!! Hlakka til að fara að slefa yfir svona hérna heima :lol:

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 17:08
by Xavant
Angelic0- wrote:I dig it....

Ég digga líka Chargerinn... en ég hata Rustang draslið... það er svo overrated eitthvað...


Dig ya..!!!

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 17:09
by Djofullinn
Angelic0- wrote:I dig it....

Ég digga líka Chargerinn... en ég hata Rustang draslið... það er svo overrated eitthvað...
Mér finnst einmitt Chargerinn svo illa heppnaður að aftan en finnst Mustanginn verulega flottur þegar það er búið að setja á hann Cervini's kittið eða eitthvað annað smekklegt kit 8)
Langar í einn með Cervini's kittinu og supercharger

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 17:51
by Alpina
DODGE CHALLENGER,,,,, og ekkert múður..

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 19:05
by Turbo-
Alpina wrote:DODGE CHALLANGER,,,,, og ekkert múður..

alvöru smekkur hér á ferð :D

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 19:09
by bimmer
Alpina wrote:DODGE CHALLENGER,,,,, og ekkert múður..


Vanda sig Sveinbjörn...... :wink:

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 19:50
by Alpina
bimmer wrote:
Alpina wrote:DODGE CHALLENGER,,,,, og ekkert múður..


Vanda sig Sveinbjörn...... :wink:


Vááá hvað þetta er skammarlegt :oops: :oops: :oops: :oops:

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 20:40
by siggir
Hann er ljótur en samt svalur.. Eiginlega camaro í hnotskurn :D

PostPosted: Sat 19. Jan 2008 21:30
by Kwóti
siggir wrote:Hann er ljótur en samt svalur.. Eiginlega camaro í hnotskurn :D

x2