Mönnunum var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur...
Fer að fara dálítið í taugarnar á manni!!! Ok þetta er kanski eins og eitthvað moggablogg eða barnaland en COME ON!
Vísir, 16. jan. 2008 07:24
Vopnaðir dólgar gengu berserksgang í Breiðholti
Tveir karlmenn í annarlegu ástandi vegna neyslu fíkniefna, og vopnaðir öxum, gengu berserksgang í tveimur stigagöngum fjölbýlishúsa í Bakkahverfi í Breiðholti undir kvöld í fyrrakvöld, og skelfdu þar íbúana.
Þeir ruddust meðal annars inn í íbúð við Blöndubakka, þar sem kona og þrjú ungabörn voru heima, og létu þeir þar dólgslega. Lögrgla sendi fjölmennt lið á mörgum bílum á vettvang þar sem mennirnir voru vopnaðir. Þeir höfðu hinsvegar falið axirnar í trjágróðri þegar þeir voru umkringdir og handteknir í Arnarbakka.
Mönnunum var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur, en mál þeirra verður rannsakað nánar