Page 1 of 1

He he hehe ...

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 01:50
by saemi
Áfengissjúklingur sem lést eftir að hafa gefið sjálfum sér sérrístólpípu hefur hlotið hin svonefndu Darwin-verðlaun 2007, en þau eru veitt til minningar um þá sem bæta afkomumöguleika mannkynsins með því að hverfa sjálfir á braut.

Verðlaunahafinn var tæplega sextugur Texasbúi sem ekki gat drukkið áfengi með hefðbundnum hætti vegna sársauka í hálsi. Hann fór því að neyta áfengis með stólpípu, en lést eftir að hafa með þeim hætti neytt þriggja lítra af sérríi.

Meðal annarra sem til greina komu voru Þjóðverji sem veitti sjálfum sér raflost er hann reyndi að losa sig við moldvörpur með því að reka málmteina niður í jörðina og tengja þá við háspennulínu.

Einnig Bandaríkjamaður sem var að rífa gamla hlöðu og byrjaði á að saga í sundur burðarstoð með þeim afleiðingum að byggingin hrundi yfir hann.

Þá var og nefndur landi hans sem „sigraði“ í keppni um hver gæti lengst staðið á járnbrautarteinum með aðvífandi lest.

Og tæplega þrítugur tölvunarfræðikennari sem lést er hann ók bifreið og vann í tölvunni sinni á sama tíma

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 04:59
by Eggert
:lol:

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 18:58
by Xavant
hehehe :lol:

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 19:04
by Aron Andrew
Image

Hvað er að fólki? :lol:

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 22:59
by Thrullerinn
Aron Andrew wrote:Image

Hvað er að fólki? :lol:


Haha þetta verður nú bara ekki svalara!

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 23:13
by Danni
Hahahaha þessi þráður er snilld! :lol:

PostPosted: Wed 16. Jan 2008 10:46
by DeMon
Image