Þið sem eruð með Vista, ég var að installa einhverjum nokkrum updatum sem komu upp þegar ég kveikti á tölvunni áðan, eitthvað glænýtt. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema að eftir að ég restartaði varð músin eitthvað skrítin hjá mér.
Það er þannig að þegar ég ætla að ýta og draga, eins og að highlighta texta eða scrolla niður á vefsíðu, þá laggar músin, eða það er eins og takkinn virki ekki. Annars virkar hún alveg rétt, og ef ég held takkanum inni í smástund, þá virkar að draga.
Er einhver annar að lenda í einhverju svona eftir að hafa náð í nýjasta Vista Update?
_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
