Page 1 of 1

Skata

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 17:29
by Aron Andrew
Langaði bara að forvitnast smá.

Borðið þið skötu í dag?

Ég er allavegana á leiðinni til ömmu í skötu, jólin byrja ekki fyrr en maður er búinn að gúffa í sig skötu á Þorláksmessu 8)

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 17:30
by Aron Fridrik
:puke: :pukel:

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 17:31
by arnibjorn
Nei

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 17:37
by oli77
Ég hef bara aldrei smakkað skötu.
Fæ bara súpu.

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 17:43
by Hannsi
nope hef aldrei og mun ekkert á næstunni á mér skötu :P

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 18:06
by Kwóti
fýla ekki skötuna en maður mætir og fær sér smá saltfisk
annars fýla ég lyktina lúmkst :P

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 18:27
by Steini B
fojj nei, en fer þó alltaf til Víkur með pabba og hann fær sér skötu og ég burger... :lol:

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 19:01
by Saxi


Jólalyktina leggur um húsið akkúrat núna

Kveðja

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 19:43
by pallorri
Hef nú smakkað skötu en get ómögulega gert það aftur
En maður fer nú árlega til gamla og fær sér saltfisk :P

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 20:27
by bjornvil
Ég svaraði nei, og það er nú yfirleitt þannig að ég snerti hana ekki. En mér var boðið á skötuhlaðborð á Kaffi Duus núna í kvöld og ég gat bara ekki farið á skötuhlaðborð án þess að fá mér skötu.

Hún var ekki eins vond og mig minnti, lyktin er tvímælalaust verri en bragðið, en ég er ekki aðdáandi ennþá, og ég lykta eins og úldinn hanski :(

PostPosted: Sun 23. Dec 2007 20:34
by HPH
ég skil ekki hvað það þarf alltaf að halda í gamlar hefðir.
í dag höfum við mikið betri mat og þurfum ekki að éta gamlan lífs-baráttu mat því það var ekkert annað til þá nema heimaslátrað og súrsað.

PostPosted: Mon 24. Dec 2007 00:36
by Ingsie
Já nei takk.. Slapp við það að fara upp á verkstæði til frænda mins i dag.. Þar er alltaf skata og saltfiskur... en ég borða ekki neitt þar.. :P

Samt shii ég kúgaðist útaf einn kúnni svoleiðis angaði af skötulykt shii, það var alveg slæmt :oops:

PostPosted: Mon 24. Dec 2007 00:52
by Xavant
djöss kjellingar eru hérna , borðar ekki nema 1/4 meðlima skötu :lol:

PostPosted: Mon 24. Dec 2007 01:47
by bmw 540
ég hef aldrey smakkað skötu og mun aldrey gera borða ekkert sem kemur upp úr sjónum nema harðfisk... og plús það er ógeðsleg lykt af henni ég get ekki farið inn í hús sem er verið að búa til skötu ég kúast bara