Aðrar hliðar...
Í fyrsta lagi, borgum við stefgjöld af tómum dvd og cd. Ok, ég fer útí BT, kaupi tóman dvd, borga fyrir bíómynd sem er ekki inná honum.. Hvert sæki ég myndina? Af hverju stefgjöld á tóma diska?
VERÐ!
Stöð 2 kostar 5.390 kr. á mánuði! Sem er meira en ég er tilbúinn að borga fyrir hörmulega dagskrá, kannski 2-3 þættir sem ég nenni að horfa á þar. Veit ekki hvernig það er núna en um tíma reyndu þeir actually að troða auglýsingum inní BÍÓMYNDIR!

Hálfvitar...
Íslenskar kvikmyndir eru ekki beint ódýrar.. mér finnst persónulega rándýrt að fara í bíó, kostar alveg 900 kall.. EN... ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR!
1200 krónur

Getur gleymt því!
Það þýðir ekkert að reyna að berjast við deilingu efnis. Búið að reyna í 15 ár allavega og hefur það skilað einhverju?
Það þarf að vera á undan, fylgja breytingum! Selja ódýrt á netinu t.d.. að ná í bíómynd á piratebay.org tekur slatta tíma, en að borga kannski 300-500 kall fyrir að ná í hana "löglega" á íslandi á úberhraða.. 300-500 er lág tala en ég er ekkert viss um að fólk sé tilbúið að borga mikið meira.. það er þó skárra að fá þann pening en engan..
Kannski er ég bara að bulla..