Page 1 of 3

Vona að ................................................

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:18
by Tommi Camaro
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1306604
Búið er að yfirheyra karlmann sem er grunaður um að hafa ekið á ungan dreng og flúið af vettvangi í Reykjanesbæ á föstudag, en hann var handtekinn síðdegis í gær. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum verður farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.

Lögreglan segir að ákoma sé á bifreið mannsins sem gæti passað við ákeyrsluna. Rannsókn á bifreiðinni stendur enn yfir. Þá er jafnframt búið að ræða við fjölda vitna.

Lögreglunni hefur borist fjöldi vísbendinga og er áfram unnið við að skoða þær gaumgæfilega.

Drengurinn sem ekið var á lést á Landspítalanum í gær. Hann var fjögurra ára gamall.

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:18
by Aron Andrew

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:19
by Jón Ragnar
Þessi maður verður étinn lifandi af samfélaginu... :x

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:19
by Aron Andrew

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:19
by ömmudriver
ÞÚ ERT EKKI EINN UM ÞAÐ :evil:

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:21
by Aron Andrew
Veit ekki af hverju mitt kom 2x, en þetta er hið óhuggnalegasta mál!

Vil votta aðstandendum drengsins alla mína samúð!

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:23
by gunnar
Ef Pólverjarnir voru illa liðnir áður þá verður þetta krossfesting...

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:27
by Vargur
Þetta er hörmulegt slys en við meigum ekki gleyma því að maðurinn sem um ræðir á líka fjölskyldu og jafnvel börn og hann á eftir að þurfa að bera þetta með sér alla ævi.
Framkoma hans á slysstað er óafsakanleg og slysið sjálft hörmulegur atburður en ég tel að Lúkasaryfirlýsingar á netinu séu engum til góðs í þessu máli.

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:37
by Ingsie
Vil votta mína dýpstu samúð til fjölskyldu, vina og vandamanna littla engilsins.. :(

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:44
by Einarsss
Get ekki skilið ef þessi maður á börn að hafa ekið af vettvangi.

PostPosted: Sun 02. Dec 2007 23:47
by Dóri-
Ætli þetta mannfífl hafi ekki verið fullt eða undir áhrifum einhverra annara efna, vona að hann fái langan dóm fyrir þetta.

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 00:12
by Stanky
einarsss wrote:Get ekki skilið ef þessi maður á börn að hafa ekið af vettvangi.


Það er náttúrulega fáránlega erfitt að setja sig í spor þessa manns. Mín fáránlega ágiskun er sú að hann hafi gjörsamlega panikkað og orðið skíthræddur, en það afsakar ekki neitt.

Þetta er vægast sagt hræðilegur atburður.

Ömurlegt.

:(

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 00:19
by Alpina
Dúfan wrote:Þetta er hörmulegt slys en við meigum ekki gleyma því að maðurinn sem um ræðir á líka fjölskyldu og jafnvel börn og hann á eftir að þurfa að bera þetta með sér alla ævi.
Framkoma hans á slysstað er óafsakanleg og slysið sjálft hörmulegur atburður en ég tel að Lúkasaryfirlýsingar á netinu séu engum til góðs í þessu máli.

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 00:23
by KFC
Ef þeir eru með réttan mann þá á að kæra hann fyrir manndráp af gáleisi.

PostPosted: Mon 03. Dec 2007 00:34
by ValliFudd