Page 1 of 3
Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:01
by Kristjan
Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun.
Honda Civic 98 lsi
Spindlar báðu megin að neðan og viftureim.
30.000 krónur takk
18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar.
Er þetta eðlilegt?

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:07
by flamatron
5000.kr tíminn. það er fínt verð, ekkert of mikið finnst mér.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:09
by bjornvil
flamatron wrote:5000.kr tíminn. það er fínt verð, ekkert of mikið finnst mér.
En er þetta ekki svolítið langur tími í svona verk? 3,5 tímar í að skipta um 2 spindla og viftureim. Kannski ekki svo mikið ef maður er heima að dunda, en á verkstæði?

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:11
by gstuning
Fer eftir hvernig spindlarnir eru festir/losaðir
og hversu lengi tekur að losa ef um vesen er að ræða
enn 3.5tímar er soldið mikill tími finnst mér.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:11
by íbbi_
verð á útseldum tíma er frá 5 uppí 11þús, þannig að það þarf ekkert að vera óeðlilegt við þetta

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:54
by saemi
Prufið að skipta um gróna spindla í gömlum bíl.................!
Ég myndi alveg gefa mér klukkutíma í hvorn ef þetta er vel fast og vesen. En.. ég hef reyndar ekki gert við hondu


Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:56
by íbbi_
spindilkúlur geta verið dauðinn

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:58
by Benzari
Gott verð.
Hef séð verri "nauðganir"
Re: Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 12:58
by srr
Kristjan wrote:Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun.
Honda Civic 98 lsi
Spindlar báðu megin að neðan og viftureim.
30.000 krónur takk
18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar.
Er þetta eðlilegt?
Hefðir sloppið betur ef þú hefðir fengið einhvern hérna til að framkvæma þetta verk fyrir þig


Posted:
Wed 28. Nov 2007 13:00
by Bjarki
Þetta bara kostar, ég myndi ekki vilja reka verkstæði jafnvel þó það væri fullbókað alla daga vikunar.
Launakostnaður, verkfæri&tæki, húsnæðiskostnaður, tryggingar, umsýsla(móttaka/bókhald/viðhald).
Þetta er ekki neinn dans á rósum held ég.
Best að reka verkstæði sem er með samning við umboð og fær til sín mestmegnis einfaldar viðgerðir (bremsur/fjöðrun/undirvagn/tímareimar).
Verkstæði leika sér með fjölda rukkaðra tíma á móti verðs á útseldum tíma. Held að flest umboðsverkstæði rukki eftir "flat rate" þ.e. hver verkþáttur er rukkaður eftir uppgefinni töflu bílaframleiðanda.
Held að algengt nýtingarhlutfall sé 80%.
Það þurfa allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Re: Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 13:51
by bimmer
Kristjan wrote:Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun.
Honda Civic 98 lsi
Spindlar báðu megin að neðan og viftureim.
30.000 krónur takk
18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar.
Er þetta eðlilegt?
Hvað finnst þér sanngjarnt og hvernig færðu þá tölu út?

Posted:
Wed 28. Nov 2007 14:43
by gstuning
Held að hann sé að kvarta bara yfir skráðum tímum,
Ég myndi giska á að þetta eru spindilkúlur sem boltast í og úr?
þ.e spindilkúlan kemur í festingu sem boltast af og á, það þarf ekki að pressa neitt úr og svona vesen.
Ef einhver kvartar yfir reiknings upphæð sá ætti sá hinn sami að reyna finna tilboð í verk áður enn bílinn fer á verkstæðið, held að það sé aragrúi af mönnum á þessu spjalli sem og l2c sem hefðu getað gert þetta ódýrar.
Og eru með jafn mikinn afslátt af varahlutum og flest verkstæði

Posted:
Wed 28. Nov 2007 14:50
by Astijons
talaðu við mig þegar þú borgar stimpilgjöld...

Posted:
Wed 28. Nov 2007 17:32
by Kristjan
Ég vissi bara ekkert hvað mér fannst sanngjarnt, fannst þetta hljóma undarlega hátt bara. Þar að auki er ég fyrir norðan, enginn snillingur mér að vitandi með aðstöðu hérna.

Posted:
Wed 28. Nov 2007 17:45
by Elnino
það bara kostar að eiga bíl
