bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Las þetta á forsíðu DCI.IS
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25840
Page 1 of 1

Author:  maxel [ Fri 23. Nov 2007 17:40 ]
Post subject:  Las þetta á forsíðu DCI.IS

Las þetta og ágætis punktar hér og þar, lítur út fyrir að 365 noti einstakt orðlag "í sinn hag".
Greinin er nákvæmlega svona:
"Sælir, notendur.
Hér er smápistill sem ég setti saman um starfsemi fjölmiðla.

Netlúðar eða bara vinnubrögð Mannlífs?

Þann 20. nóvember sl. var birt grein á vef tímaritsins Mannlífs sem er í eigu 365 ljósvakamiðla og er titill greinarinnar svohljóðandi: "Netlúðar lýsa frati á Smáís". Þessi grein er skrifuð vegna þess að ákveðinn hópur tók sig til og bjó til undirskriftalista til að lýsa yfir frati á starfsemi SMÁÍS, en það sem angrar okkur mest er uppnefnið á eiganda torrent.is, sem og notendum vefsetursins. Í greininni segir svo: "Lögregla hefur þegar tekið skýrslu af forsvarsmanni torrent.is og netlúðanum Svavari Lútherssyni." Þetta eru ákveðin meiðyrði og er bara einn vinkill á því hvernig fjölmiðlar starfa.

Fréttin er svona í heild:

"Netlúðar lýsa frati á Smáís

20. nóv. 2007

Undirskriftasöfnun þar sem lokun niðurhalsvefjarins torrent.is er mótmælt er hafin á Netinu. Vefurinn var tekinn niður að kröfu sýslumannsins í Hafnarfirði eftir að rétthafasamtökin Smáís kærðu vefinn.

Í yfirlýsingunni segir: „Við undirrituð lýsum hér með yfir frati á SMÁÍS vegna málshöfðunar þeirra á hendur torrent.is. Tekið er fram að undirskriftalisti þessi er á engan hátt tengdur torrent.is síðunni eða aðstandendum hennar á annan hátt en þann að sá er skapaði listann er aðdáandi síðunnar torrent.is.
Skammist ykkar SMÁÍS!
Hvíl í friði Torrent.is.“

Þegar hafa rúmlega hundrað og fimmtíu manns lýst yfir frati á Smáís þar sem þeir geta ekki lengur sótt sér nýja diskinn hans Páls Óskars eða þætti úr Næturvaktinni endurgjaldslaust. Lögregla hefur þegar tekið skýrslu af forsvarsmanni torrent.is og netlúðanum Svavari Lútherssyni."

Hægt er að skoða fréttina í heild á http://www.mannlif.is/ordromur/nr/1023

Þeir leyfa sér allt! Til dæmis taka þeir sérstaklega fram í greininni efni (Næturvaktina og disk Páls Óskars) sem þegar var búið að banna á Istorrent og segja að þeir sem hafa skrifað sig á listann séu fúlir yfir því að geta ekki sótt það! Hvernig í ósköpunum á að vera hægt að sækja efni sem ekki er til staðar? Fylgjast þessir menn ekki með neinu? Nei, málið er nefnilega það að á meðan hlutirnir eru þeim ekki í hag þá einfaldlega segja þeir ekki frá þeim!

Þann 22. nóvember var birt frétt á vef DV.is, sem er í eigu 365 ljósvakamiðla ehf. Fyrirsögnin er "Ný torrentsíða sett upp á netinu". Slóðin á torrent-síðuna er gefin upp í fréttinni, ásamt nafni móður einstaklings þess sem sá um rekstur síðunnar.

Fréttin er svohljóðandi:

"Búið er að setja upp nýja vefsíðu sambærilega við torrent.is sem lokað var í vikunni að kröfu Samtaka myndrétthafa á Íslandi (SMÁÍS). Umsjónarmenn síðunnar voru sem kunnugt er sakaðir um aðild að ólöglegri dreifingu tónlistar með sérstakri skráaskiptatækni.

Nýja síðan er skráð erlendis. Samkvæmt uppflettingu á netinu er Rósa Halldórsdóttir til heimilis í Grindavík ábyrgðarmaður nýju vefsíðunnar. Miðað við uppgefið símanúmer er fullt nafni hennar Hjördís Rósa Halldórsdóttir."

Hægt er að skoða fréttina í heild á http://dv.is/frettir/lesa/2692


Nú spyr ég: Hversu langt á þetta að ganga?
Er það bara þannig með þessi fyrirtæki sem eiga allt, og þar tek ég sérstaklega fram 365 miðla sem stunda ömurleg vinnubrögð, að þau komast upp með allt sem þeim sýnist?
Þetta fyrirtæki á gommu af peningum - eigandinn er örugglega svona "Jóakim Aðalönd - og peningarnir í Smáís".
Núna undanfarið hafa birst í Fréttablaðinu, 24 stundum, Morgunblaðinu, DV og fleiri blöðum, greinar um Istorrent ehf., sem eru alls ekki sannar. Allt sem SMÁÍS gefur upp er kjaftæði og nú ætla ég að hafa eftir ónefndum aðila sem ég talaði við í dag: “Ef SMÁÍS myndi segja mér að himininn væri blár þá þyrfti ég einfaldlega að fara út og gá að því til að athuga hvort það sé satt.”

Skilaboð mín til ykkar fjölmiðlanna eru mjög skýr og ég ætla að segja þau hér í þessari grein!
Hættið að láta eins og SMÁÍS sé eitthvert fórnarlamb og hættið að gera lítið úr torrent-samfélaginu. Komið með betri heimildir frá báðum hliðum, ekki bara annarri! Fjallið um málið á hlutlausan hátt, en hingað til hefur öll umfjöllun verið algjörlega einhliða – frá hlið SMÁÍS! Hættið þeim hræðsluáróðri sem þið hafið svo augljóslega stundað síðustu vikur! Hvenær hefur t.d. nokkur hundruða milljóna skaðabótakrafa verið samþykkt fyrir dómi, og hvenær hefur einhver verið dæmdur til greiðslu svo hárrar sektar? Þetta er dæmi um eina af þeim rökvillum sem Snæbjörn Steingrímsson lætur hafa eftir sér opinberlega, en rangfærslur hans skipta hundruðum – eins og milljónirnar sem hann ætlar að krefja Svavar Kjarrval um!"

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/