Page 1 of 1

Stolt siglir...

PostPosted: Tue 20. Nov 2007 22:10
by Steini B
...tölvan mín þurru landi á, stendur á gólfi og vaggar til og frá...


Shiiii, djöfull er þetta ekki góð tilfinning, svaka jarðskjálftahrina búin að vera í gangi hérna í dag og er enn að...

maður bíður bara eftir að maður fái nágrannann fyrir ofan sig í fangið...

PostPosted: Tue 20. Nov 2007 22:17
by Kristjan
Ég er búinn að hafa það á tilfinningunni síðan í sumar að það sé að fara gjósa einhversstaðar. Það væri gaman að sjá gos en ég heyrði að næsta gos gæti verið í marga áratugi. :shock:

PostPosted: Tue 20. Nov 2007 22:38
by Steini B
já, btw 89 skjálftar í dag (enn sem komið er), og allir (nema 5-6) eru um 1-3km frá selfossi....

PostPosted: Tue 20. Nov 2007 22:43
by GunnarM3
Alveg er maður að verða geðveikur á þessum skjálftum endalaust, ekkert búið að koma í einhverj 1-2 klukkutíma nokkurnveginn :)

PostPosted: Tue 20. Nov 2007 22:58
by Misdo
ekki fann ég neitt

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 00:03
by bmabi
ég var þarna á annari hæð að spila monopoli í góðum fýling :lol:

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 00:45
by Aron Andrew
Hvað eru þetta búnir að vera stórir skjálftar?

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 00:49
by ömmudriver
Aron Andrew wrote:Hvað eru þetta búnir að vera stórir skjálftar?


Allaveganna nógu stórir til þess að hrista upp í Steina Béé....................

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 00:57
by Aron Fridrik
ömmudriver wrote:
Aron Andrew wrote:Hvað eru þetta búnir að vera stórir skjálftar?


Allaveganna nógu stórir til þess að hrista upp í Steina Béé....................
:lol: :lol:

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 02:59
by siggir
Þetta eru fjandi snarpir skjálftar. Glamrar í skápum og myndir að skekkjast.

Sá sterkast var eitthvað um 3,5.

Ég er búinn að vera að vinna verkefni í allt kvöld og hefur ekkert gengið.
Held ekki einbeitingunni því ég er alltaf að bíða eftir næsta skjálfta :lol:

En ég held að þetta sé búið í bili. Ég er allavega farinn í bælið.

PostPosted: Wed 21. Nov 2007 10:28
by Geysir
Skil ekki þessa fréttamennsku.
Nú er ég búinn að fylgjast með jarðskjálftamælunum á vedur.is og þar sést að stærstu skjálftarnir voru um eða yfir 4 á richter.