Page 1 of 3

Orðið svolítið þreytt

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 16:49
by bragi1
Sá tvær fréttir á MBL sem mér fannst sýna helst til vel þetta ,,verð að nefna það ef það var BMW" dæmi sem er í gangi. Af hverju ekki ,,Patrol út af vegi... ."?

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1303578

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1303590

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 17:41
by maxel
þetta er orðið frekar pirrandi... kannski maður kvarti :evil:

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 18:12
by zazou
BMW eru bara badboy bílar :lol:
Ef þú horfir á gamlar breskar glæpamyndir/-þætti, þá eru skúrkarnir undantekningalítið á Jaguar. Í frönskum myndum eru bófarnir gjarnan á MB.

Bara hluti af leiknum.

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 19:23
by snorri320
þeir eru líka búnir að gefast upp á að taka það fram í fréttinni, farnir að færa þetta í fyrirsögnina svo fólk taki alveg örugglega eftir því að þetta hafi verið BMW

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 19:25
by ömmudriver
snorri320 wrote:þeir eru líka búnir að gefast upp á að taka það fram í fréttinni, farnir að færa þetta í fyrirsögnina svo fólk taki alveg örugglega eftir því að þetta hafi verið BMW


:lol2: Góður :wink:

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 19:40
by crashed
sorglegt að þetta byrjar alltar á "ungur ökkumaður á BMW" en með aðra bíla þá er ekki nefnd bíla tegund eða aldur viðkomandi

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:14
by Stanky
crashed wrote:sorglegt að þetta byrjar alltar á "ungur ökkumaður á BMW" en með aðra bíla þá er ekki nefnd bíla tegund eða aldur viðkomandi


Hugsa að þetta sé ekki ritstjóranum að kenna - lögreglan matar náttúrulega fréttaveiturnar.

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:15
by Misdo
greinilega einu merkilegu bílarnir fyrst þeir eru alltaf nafngreindir :wink:

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:19
by Jón Ragnar
Skil ekki hvað fólk getur vælt yfir þessu!!

:roll:



Barílagi ef fólk tekur eftir að þetta séu BMWar sem eru að badboyast útum allt! 8)

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:49
by Aron Fridrik
er þetta ekki bíllinn sem hrói var að selja :cry:

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:49
by crashed
verst bara að lögreglan er farinn að einblína á BMW hvort sem það heitir hraðasegtir eða smá afbrot í umferðini eða bara "regluleg skoðunn"

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:56
by BirkirB
ok...ég er sekur...það er samt ekkert að bílnum...myndir er bara vangefin

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:57
by Aron Fridrik
hvernig bíll er þetta ?

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:57
by Einarsss
Hef átt nokkra bmw-a undanfarin ár og ég hef ekki einu sinni verið stoppaður. Get ekki sagt að löggan leggi bmw í einelti útfrá minni reynslu

PostPosted: Sun 18. Nov 2007 23:59
by gunnar
Hef verið svolítið stoppaður á svarta E30 en aldrei nein leiðindi. Menn bara með routine check.

Ég alla vega er oftar stoppaður á BMW heldur en á jeppanum mínum.. Lenti meira segja einu sinni í því að lögreglan tók frammúr mér (var á jimny) og stoppaði bmwinn fyrir framan mig. Hann ók á sama hraða og ég og sýndi engin merki um neitt afbrot.