Þessi pistill er alveg til skammar fyrir smáís og sýnir bara hvernig lið þetta er. Fyrir utan allt málfar og stafsetningu, sem er alger hörmung, þá er þetta allt saman tómt bull. Það hefur ekki verið gerð nein rannsókn á hversu margir borguðu né hve mikið. Radiohead hafa ekki gefið upp neinar tölur mér að vitandi þannig að þetta er allt byggt á einhverjum tölum útí loftið.
Síðan er það alveg vitað mál að tónlistarmenn fá bara lítið brot af kostnaði plötu í sinn vasa. Þó menn séu að borga litlar upphæðir fyrir þetta þá er ekki sagt að tónlistarmennirnir myndu fá meira þó þeir selji í búðum.