Page 1 of 2

Afmæli hjá okkur konunni....hvert skal fara?

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 19:51
by krullih
Sælir Kraftsmenn,

við skötuhjúin eigum afmæli á morgun til þriggja ára og því ætlaði ég að bjóða henni út að borða og vera kammó 8)

Einhver með tillögu að stað sem gott er að borða, rólegt andrúmsloft og maður fer ekki út á hækju eftir að hafa selt undan sér fótinn ?

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 19:54
by Einarsss
Rauðahúsið á Eyrarbakka


http://raudahusid.is/

góður matur, kúl staðsetning og tilvalið í smá óvissuferð fyrir konuna ;)

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 19:55
by Kristjan
Taktu flugið til Akureyrar, gistu á Hótel Kea, farðu svo á Friðrik V og farðu í Gourmet matseðilinn með víni.

Ég fór á Friðrik V með Heiðdísi, 1 Ágúst síðastliðinn og sama kvöld trúlofuðum við okkur. BARA frábært kvöld..

Þegar maður fer út að borða þá er ekki málið að vera cheap.


Ef þú meikar ekki að fara til Akureyrar þá mæli ég með Lækjarbrekku, Sjávarkjallaranum. Svo er Einar Ben ágætur líka, Lúlli yfirþjónn er góður vinur minn, segðu bara að Kristján hafi sent þig, þá trítar hann þig eins og kóng. :lol:

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 19:55
by fart
Sjávarkjallarinn er líklega einn besti veitingastaður í Evrópu.

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 19:56
by Kristjan
einarsss wrote:Rauðahúsið á Eyrarbakka


http://raudahusid.is/

góður matur, kúl staðsetning og tilvalið í smá óvissuferð fyrir konuna ;)


Ég fór þarna einusinni í hádeginu í sumar og mæli ekki með humarsúpunni. En annars var maturinn ágætur.

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:04
by bebecar
fart wrote:Sjávarkjallarinn er líklega einn besti veitingastaður í Evrópu.


VOX og La Primavera sömuleiðis...

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:08
by Stanky
Bæjarins bestu .... og kókómjólk í bónus!

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:23
by srr
Madonna á Rauðárstíg finnst mér alltaf ágætur.
Kannski lítill en maturinn er æðislegur!!
Ekkert svo dýrt heldur.

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:24
by maxel
goldfinger og síðan olís

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:28
by siggir
Stanky wrote:Bæjarins bestu .... og kókómjólk í bónus!


Pulsa og kókómjólk er einhver versta samsetning sem hefur nokkurntíma komið inn fyrir mínar varir. :pukel:

On topic: Rauða húsið er mjög fínt, líka Hafið bláa sem er miðja vegu milli Eyrabakka og Þorlákshafnar. Frábært útsýni ef þú kemst í björtu.

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:29
by Kristján Einar
siggir wrote:
Stanky wrote:Bæjarins bestu .... og kókómjólk í bónus!


Pulsa og kókómjólk er einhver versta samsetning sem hefur nokkurntíma komið inn fyrir mínar varir. :pukel:

On topic: Rauða húsið er mjög fínt, líka Hafið bláa sem er miðja vegu milli Eyrabakka og Þorlákshafnar. Frábært útsýni ef þú kemst í björtu.



ot: PULSA OG KÓKÓMJÓLK ER BEST

on topic: sjávarkjallarinn eins og hefur komið fram hérna áður

og til hamingju með afmælið :)

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:32
by siggir
Kristján Einar wrote:
siggir wrote:
Stanky wrote:Bæjarins bestu .... og kókómjólk í bónus!


Pulsa og kókómjólk er einhver versta samsetning sem hefur nokkurntíma komið inn fyrir mínar varir. :pukel:

On topic: Rauða húsið er mjög fínt, líka Hafið bláa sem er miðja vegu milli Eyrabakka og Þorlákshafnar. Frábært útsýni ef þú kemst í björtu.



ot: PULSA OG KÓKÓMJÓLK ER BEST

on topic: sjávarkjallarinn eins og hefur komið fram hérna áður

og til hamingju með afmælið :)


[-(

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:38
by Spiderman
Vox, Silfur og Domo eru mjög góðir, en ef þú ætlar að spara þér aurinn myndi ég tékka á Tapasbar :!:

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 20:55
by bjornvil
Við Fjöruborðið á Stokkseyri er rosa góður, besta humarsúpa í heimi!

Caruso er alltaf mjög góður líka, alls ekkert of dýr, og ég hef aldrei farið ósáttur þaðan.

Hef tvisvar farið á Humarhúsið, þjónustan og maturinn til fyrirmyndar, tekur reyndar aðeins í budduna ;)

PostPosted: Thu 15. Nov 2007 21:47
by krullih
Komumst því miður ekkert út fyrir bæjarmörkin, - frábærar tillögur hérna og þakka öllum sem eru til í að pitcha.

Erum hvorugt að fara að fá okkur vín (mesta lagi eitt glas af rauðu / hvítu) og var að spá í svona 12-15 kall fyrir dinnerinn...

Humarhúsið lítur vel út - hægt að fá svona fimm rétta surprise menu...

Annars er Argentína / perlan líka sneddý...so much to choose from !

ps.
langar suddalega á sjávarréttakjallaran en konan neitar að smakka á fiski.