bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Megane Sport 225 *MYND Á BLS 2!* https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25538 |
Page 1 of 4 |
Author: | Henbjon [ Thu 08. Nov 2007 02:03 ] |
Post subject: | Megane Sport 225 *MYND Á BLS 2!* |
Jæja, núna er bíllinn kominn í 2000 kílómetra og ég ætla mér að skrifa örstuttann pistil um hann. Ég var að spá í 3 bílum.. GTi, OPC og MeganeSport.. GTi er frábær bíll, alveg yndislegur, OPC...tjaaahh hann er get ég sagt mjög vafasamur, en maður fær alveg allt fyrir peninginn býst ég við..hann er frekar cheap overall og ég fann ekki fyrir neinu öryggi þegar ég keyrði hann,,,eða þið vitið svona "i have total control" fýling Bless OPC.. GTi vs MeganeSport.. báðir líkir bílar, en ég hallaðist meira að Megane, finnst hann fallegri og svo var hann líka bara með öllu(leður, lúga, privacyglass, bluetooth, cruizectrl, gerþak, xenon etc).. Eitt leiddi allavega að öðru og ég endaði á bláu stykki. Hann er búinn að reynast mér alveg frábærlega hingað til og ekkert klikkað! Vélin er ótrúlega góð og hljóðið er ekkert til að gráta yfir. Vélin togar og togar í öllum gírum á öllum snúningum.. alveg magnað hvað þetta vinnur! 225 hestöfl er alveg mátulegt fyrir framhjólin, það er hægt að keyra hann rólega án nokkurs örðuleika svo er líka hægt að taka vel á honum. Að lifa með þessum bíl everyday er mjög þægilegt..það er lyklalaust aðgengi, lyklalaust start og lyklalaus læsing þannig maður tekur aldrei upp lykilinn lengur. Hann er fljótur að hitna og mjög lengi að kólna aftur. Fjöðrunin er líka algjör snilld, bíllinn réttir sig við í beygjum eins og hetja og svínliggur, nánast sama hvaða hraða maður er á. Sætisstaðan í þessum bílum er umdeild þar sem maður situr frekar hátt í þeim, en það var fljótt að venjast og sætin eru mjög gott combination af race og comfort. Halda vel um mann en eru umfram allt mjög þægileg. Sætin aftur í eru líka alveg ótrúlega þægileg og rúmar bíllinn ágætlega 5 manns. Eina sem hefur angrað mig er þegar það kom snjór og allt fraus um daginn, þá heyrðist leiðindahljóð í topplúgunni þegar bíllinn var að beygja og athafast á einhvern hátt en það er bara eðlilegt skilst mér. Bremsurnar eru frá Brembo og hafa svo sannalega staðið undir nafni líka! Ég finn núna hversu mikilvægt er að hafa góðar bremsur..það er alveg ótrúlegt hvað þær geta veitt manni mikið öryggi.. Ef eitthvað óvænt kemur fyrir framan þig og þú bremsar,,búmm,,stopp. Ég sé engan veginn eftir að hafa stokkið á þennan grip og er langtfrá því að fá leið á honum.. Bann kemur mér sífellt á óvart og B&L hafa ,,bara,, reynst mér vel líka. Solid gæjar þar á ferð. En já, ég vildi bara kasta smá pistli hingað, örugglega frekar mikið amatör review en það verður bara að hafa það! Virðingarfyllst |
Author: | Alpina [ Thu 08. Nov 2007 07:21 ] |
Post subject: | |
Það er víst ..þrusuvinnsla í svona bíl |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 08. Nov 2007 07:47 ] |
Post subject: | |
Gaman að svona grein. Til hamingju með gripinn. |
Author: | Daníel [ Thu 08. Nov 2007 08:40 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með bílinn. Þetta er klárlega einn af betri bílum sem í boði eru í dag í hot-hatch flórunni. |
Author: | Kristján Einar [ Thu 08. Nov 2007 11:37 ] |
Post subject: | |
til hamingju með bílinn en ég verð að spyrja að einu, ég las einhverstaðar að hann sé 1800kg er hann ekki bara geldur útaf því? (ef hann er svona þungur þ.e.a.s, sem ég bjóst ekki við) |
Author: | fart [ Thu 08. Nov 2007 11:41 ] |
Post subject: | |
Svona bíll getur ekki verið 1800kg. |
Author: | arnibjorn [ Thu 08. Nov 2007 11:50 ] |
Post subject: | |
Ég hef keyrt svona bíl uppá akstursbraut og það var alveg virkilega gaman! ![]() Fannst þetta virka alveg nokkuð vel, eina skiptið sem ég hef keyrt framhjóladrifinn bíl uppá akstursbrautinni ![]() |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 08. Nov 2007 11:55 ] |
Post subject: | |
1375 kg. segir framleiðandinn. 1820 kg. er mesta þyngd sem bíllinn, ökumaður og farþegar+ farandur. |
Author: | finnbogi [ Thu 08. Nov 2007 11:57 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Svona bíll getur ekki verið 1800kg.
það er ekki sjéns að þessi bíll sé janf þungur og E39 M5 Prammi ![]() svo það sé á hreinu!! þá er station megane með dísel vél að vigta um 1260kg þannig ég er nokkuð viss um án þess að vera með eitthverja fullyðringar held ég að þessi sé um 1200kg ! |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 08. Nov 2007 12:10 ] |
Post subject: | |
finnbogi wrote: fart wrote: Svona bíll getur ekki verið 1800kg. það er ekki sjéns að þessi bíll sé janf þungur og E39 M5 Prammi ![]() svo það sé á hreinu!! þá er station megane með dísel vél að vigta um 1260kg þannig ég er nokkuð viss um án þess að vera með eitthverja fullyðringar held ég að þessi sé um 1200kg ! Fór yfir margar síður og sumir gefa upp þyngd bílsins án alls vökva en rétt þyngd er 1375. Ég hringdi í Baldvin sem á svona formula græju og staðfesti hann þá þyngd. |
Author: | finnbogi [ Thu 08. Nov 2007 13:25 ] |
Post subject: | |
já ok ![]() þegar ég byrðjaði að skrifa var þitt comment ekki komið sá það bara þegar ég var búinn að svara ![]() en já þessi þyngd hljómar alveg rétt hja þér dóri ![]() |
Author: | Henbjon [ Thu 08. Nov 2007 13:42 ] |
Post subject: | |
ég get alveg sagt það að þessi bíll er aaalls ekki geldur ![]() |
Author: | aronjarl [ Thu 08. Nov 2007 15:07 ] |
Post subject: | |
Ég hef alltaf dýrkað HotHatch bíla.!!! Fakkinn er bestur í þeim! svo er víst... Átti 205 GTi 1.9 Peugeot um árið ---> Skemmtilegasti framdrifsbíll sem ég hef keyrt. Til hamingju með þennan. Hef prufað svona bíl og þetta heillar mig mest af þessmu 3 sem þú ert að nefna. Ég er fyrir pínu vonbrygðum á nýja Type R Civic. Fiesta ST finst mér flott, langar að prufa hana. Mér langar að prufa að spyrna við þig. Er á 90 árg af Benz. Held hann sé á svipuðu level og þessir. búin að taka nokkra nýja Type R og nýja GTi Golf. Vill prufa á móti OPC og 225 Til lukku með þetta. Kv. |
Author: | Henbjon [ Thu 08. Nov 2007 18:01 ] |
Post subject: | |
Ég tek allavega GTi, en getum kannski borið okkur saman við tækifæri, annars er ég voðalega lítið í spyrnum sem slíkum! En já þetta er alveg ótrúlega skemmtilegur bíll sem kemur mér sífellt á óvart.. ![]() |
Author: | hlynurst [ Thu 08. Nov 2007 18:18 ] |
Post subject: | Re: Megane Sport 225 |
Sorry en mér finnst þetta svolítið fyndið. ![]() BmwNerd wrote: Jæja, núna er bíllinn kominn í 2000 kílómetra... BmwNerd wrote: Hann er búinn að reynast mér alveg frábærlega hingað til og ekkert klikkað!
Hafðir þú svona littla trú á nýjum bíl? Annars hljómar þetta sem skemmtilegur bíll þrátt fyrir að hafa drifið vitlausu megin. |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |