Page 1 of 1

Þessar helvítis kellingar....

PostPosted: Fri 05. Sep 2003 15:41
by Ozeki
Fékk þennan á póstinum .... :D

Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogann á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna sem ég hélt á í vinstri hendinni.
Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt
gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og tvíburana tvo. Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af mikilvægu símtali!
Hvað er að þessum helv. kellingum?

PostPosted: Fri 05. Sep 2003 16:01
by Heizzi
OHH!! Óþolandi að lenda í þessu, djöz tzchellingar :lol:

PostPosted: Fri 05. Sep 2003 20:21
by Haffi
lol .... slap those bitches!

PostPosted: Sat 06. Sep 2003 00:07
by saemi
Hehehehe, góður punktur.

Mjög íslenskt fyrirbrigði... allir hinir eru ruglaðir... allt í lagi með mig!

Sæmi

PostPosted: Sat 06. Sep 2003 00:16
by Jss
Góður

PostPosted: Sat 06. Sep 2003 00:46
by Haffi
já ég get líka verið svona stupid.... með sítrónutopp í klofinu, hægri höndina á farþegasætinu að chilla og vinstri útum gluggan að hætti sannra ghettostrumpa og svo stýrt með hnénu.... I'm a pure blökkumaður!