Page 1 of 1
Skronsterið hikstar..

Posted:
Fri 02. Nov 2007 10:11
by Thrullerinn
Einhver sem gæti gefið mér smá ráðleggingu ?
Þetta gerist eingöngu þegar það er rakt loft, hitastig hefur engin áhrif,
það er eins og vélin "koki" aðeins við auknu álagi.. Þetta hverfur síðan
þegar vélin nær hita.
Annars hefur aldrei neitt bilað í þessu greyi, ekinn rétt um 200 þús..
Það er nýbúið að skipta um kertin og yfirfara allar reimar o.fl.

Posted:
Fri 02. Nov 2007 10:33
by siggir
Hvers konar súkku erum við að tala um? Er þetta blöndungs- eða innspýtingar-?

Posted:
Fri 02. Nov 2007 11:12
by gstuning
prufaðu smá carb cleaner,
ok, prufaðu fullt.

Posted:
Fri 02. Nov 2007 11:18
by Kristjan PGT
Ég er nú reyndar með allt annan mótor en þetta er líka að gerast stundum hjá mér.
á morgnanna þegar ég keyri út götuna þá er einmitt eins og hann koki..fái ekki bensín eða neista...svo eftir 2 mín er allt í góðu


Posted:
Fri 02. Nov 2007 15:33
by íbbi_
ég veit svosum ekki hvað þetta er, en þegar bílar hjá mér koma með einhverja álíka hegðun, byrja ég á að athuga kefli/kerti/þræði, svo myndi ég setja chamber cleaner inn á sogreinina á honum, þetta rótvirkar yfirleitt,
að dæla sona hreinsir inn á mótorinn getur haft fáránlega mikil áhrifm ég átti grand cherokee jeppa sem eyddi 36l á hundraðið, gékk illa og var kraftlaus, ég var búin að skipta út öllu kveikjukerfinu nánst, loftsíuy loftflæðiskynjara map sensor, búið að lesa og villuhreinsa... bíllin var orðin mikið skárri en ennþá skítafúsk í honum eitthvað.. þangað til ég dældi sona cleaner inn á hann og lét hann ganga..

Posted:
Fri 02. Nov 2007 15:38
by Saxi
Lenti í svipuðu á 1,6 16V Vitöru og þá var einn kertaþráður ónýtur.
Svo var slanga að einhverjum vacum pungi fyrir aftan manifoldið að stríða mér. Gekk varla heilan gang en það hafði ekkert að gera með raka reyndar. Slatti af teipi lagaði það.
Kveðja

Posted:
Fri 02. Nov 2007 22:00
by Thrullerinn
Ætla að prófa þennan Carb-Cleaner.. ef ennþá bögg skipta út kertaþráðunum..
gruna þá
þakka inputið á þetta....
Þrullinn

Posted:
Thu 08. Nov 2007 21:41
by Kristjan PGT
HVar fær maður þennan "Chamber" cleaner?

Posted:
Thu 08. Nov 2007 21:50
by gstuning
hvergi,
enn carb cleaner fæst í BílanaustN1

Posted:
Thu 08. Nov 2007 21:54
by Kristjan PGT
Takk fyrir það..
En að dæla þessu ofan í intake-manifold-ið...er það sniðugt?

Posted:
Thu 27. Dec 2007 11:16
by Thrullerinn
stutt follow up..
Setti nýja kertaþræði í og allt glimrandi..

Posted:
Thu 27. Dec 2007 21:02
by Jónas
Nákvæmlega það sama að gerast hjá mér á voffanum, þegar blautt er úti á hann það til að koxa undir álagi..
er að fara að skipta um þræði