Page 1 of 4

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 09:17
by Haffi
TÖLVA ?!!!!

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 10:18
by Haffi
flamatron wrote:OBC, On board Computer...

Honey tits I know..... bara orðið TALVA fer endalaust í taugarnar á mér!

Mig langar að rífa tunguna úr fólki og kyrkja það með henni þegar ég heyri fólk segja TALVA!

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 10:25
by bebecar
Sama hjá mér þegar fólk notar fylki um Bandaríkin.... :burn:

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 10:58
by Heizzi
bebecar wrote:Sama hjá mér þegar fólk notar fylki um Bandaríkin.... :burn:

Góður 8)

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 17:23
by Schulii
sko aðeins off topic hérna EN...

ég hef alltaf notað orðið TÖLVA en núna er það komið inn í orðabók Háskóla Íslands að TALVA er líka rétt orð.. gerðist í fyrra held ég!!!

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 17:54
by GHR
Fyrst að allir eru komnir off topic þá ætla ég líka :wink:

Þetta er bara eins og orðið pylsa/pulsa. Skrýtið fólk (og sveitafólk) segir pylsa en venjulegt fólk segir pulsa :wink: :lol:
Nei, án gríns þá sagði ég alltaf talva þangað til eitthver ''guest'' á spjallinu varð reiður og skammaði mig fyrir að segja talva en ekki TÖLVA :roll:

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 17:58
by bebecar
Mjög skondin umræða... við ættum kannski að hafa málfars umræður?

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 20:00
by Ozeki
Schulii_730i wrote:ég hef alltaf notað orðið TÖLVA en núna er það komið inn í orðabók Háskóla Íslands að TALVA er líka rétt orð.. gerðist í fyrra held ég!!!

Sé það rétt ætti maður kannkski að fara að titla sig talvanarfræðing :wink:

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 20:31
by fart
það er T Ö L V A og ekkert kjaftæði. :P

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 21:39
by iar
Skil ekki vandamálið. Tölva og pylsa. End of story! :-D

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 21:42
by Gunni
iar wrote:Skil ekki vandamálið. Tölva og pylsa. End of story! :-D

neinei þú ert eitthvað að misskilja....orðið er pulsa (nema fyrir norðanmenn) en einnig þykir gott að nefna þetta bara: Pulla :)

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 21:50
by iar
Gunni wrote:
iar wrote:Skil ekki vandamálið. Tölva og pylsa. End of story! :-D

neinei þú ert eitthvað að misskilja....orðið er pulsa (nema fyrir norðanmenn) en einnig þykir gott að nefna þetta bara: Pulla :)

Ertu að kalla mig norðanmann!??! :evil: ;-)

Pylsa og tölva!

Þú talar kannski um þurlur en ekki þyrlur? ;-)

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 21:55
by bebecar
Og ríki en ekki fylki - fannst ég vera orðin smá útundan hérna...

ANnars væri það bandafylkjaforseti, alfylkisstjórnin, alfylkislögregla o.s.frv!

Hljómar asnalega ekki satt?

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 22:27
by Gunni
iar wrote:Ertu að kalla mig norðanmann!??! :evil: ;-)

Pylsa og tölva!

Þú talar kannski um þurlur en ekki þyrlur? ;-)

Í raun ætti ég að tala um þujrlur því þessi useless stafur Y á víst að hljóða sem ujj, þó það beri það enginn þannig fram. Prófaðu t.d. að segja pylsa með réttum framburði: pujlsa, hljómar soldið eins og pulsa ?? ;)

PostPosted: Thu 04. Sep 2003 22:39

Nú ertu farinn að hljóma eins og stærðfræðikennarinn minn úr gaggó þegar hún var að tala um exx, "ujj" og zetu. :-)