bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Mafían upprætt í Noregi! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25338 |
Page 1 of 1 |
Author: | ValliFudd [ Tue 30. Oct 2007 10:41 ] |
Post subject: | Mafían upprætt í Noregi! |
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1299706 Quote: Erlent | mbl.is | 29.10.2007 | 21:32
Kebabmafía upprætt í Noregi Norsk lögregla hefur upprætt það sem kallað hefur verið Kebab-mafía, glæpahring sem framleiddi kjöt fyrir kebabstaði án nokkurs eftirlits og án þess að greiða af því nokkra skatta. Sjö hafa verið handteknir og bíða þeirra nú ákærur vegna fjársvika, brota á matvælalöggjöfinni og skattsvika svo nokkuð sé nefnt. Vitað er til þess að a.m.k. einn hafi veikst við að hafa borðað kjötið, en bakteríuinnihald í kjötinu reyndist mun meira en ásættanlegt þykir þar sem lögum um meðferð kjötsins var ekki fylgt. Rannsókn málsins hófst í vor þegar lögregla og matvælaeftirlit hóf aðgerðir við leynilega kjötverkun í Østfold, verksmiðjan hafði starfað frá árinu 2003 og segir lögregla starfsemina hafa verið svo skipulagða og umfangsmikla, að enginn vafi leiki á að hún flokkist undir skipulagða glæpastarfsemi. Kjötið var selt á um 100 kebabstöðum í Ósló, talið er að um 500 tonn af kjöti hafi verið seld, að verðmæti um 100 milljóna norskra króna, sem nemur um milljarði íslenskra króna. |
Author: | Kristjan [ Tue 30. Oct 2007 12:15 ] |
Post subject: | |
Notuðu þeir mistery meat? |
Author: | jeppakall [ Tue 30. Oct 2007 19:16 ] |
Post subject: | |
þetta er ástæðan fyrir því að ég borða ekki kebab! Hef enga tillöngun til að flytja á klósettið mitt! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |