Mafían upprætt í Noregi!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Mafían upprætt í Noregi!

Postby ValliFudd » Tue 30. Oct 2007 10:41

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1299706

Erlent | mbl.is | 29.10.2007 | 21:32
Kebabmafía upprætt í Noregi

Norsk lögregla hefur upprætt það sem kallað hefur verið Kebab-mafía, glæpahring sem framleiddi kjöt fyrir kebabstaði án nokkurs eftirlits og án þess að greiða af því nokkra skatta. Sjö hafa verið handteknir og bíða þeirra nú ákærur vegna fjársvika, brota á matvælalöggjöfinni og skattsvika svo nokkuð sé nefnt. Vitað er til þess að a.m.k. einn hafi veikst við að hafa borðað kjötið, en bakteríuinnihald í kjötinu reyndist mun meira en ásættanlegt þykir þar sem lögum um meðferð kjötsins var ekki fylgt.

Rannsókn málsins hófst í vor þegar lögregla og matvælaeftirlit hóf aðgerðir við leynilega kjötverkun í Østfold, verksmiðjan hafði starfað frá árinu 2003 og segir lögregla starfsemina hafa verið svo skipulagða og umfangsmikla, að enginn vafi leiki á að hún flokkist undir skipulagða glæpastarfsemi.

Kjötið var selt á um 100 kebabstöðum í Ósló, talið er að um 500 tonn af kjöti hafi verið seld, að verðmæti um 100 milljóna norskra króna, sem nemur um milljarði íslenskra króna.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Kristjan » Tue 30. Oct 2007 12:15

Notuðu þeir mistery meat?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby jeppakall » Tue 30. Oct 2007 19:16

þetta er ástæðan fyrir því að ég borða ekki kebab! Hef enga tillöngun til að flytja á klósettið mitt!
jeppakall
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 292
Joined: Thu 13. Jul 2006 12:08


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests