bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

stolið
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25305
Page 1 of 1

Author:  maggib [ Sun 28. Oct 2007 21:50 ]
Post subject:  stolið

Aðfaranótt 28. október var farið inn á verkstæði í vinnunni minni og
þaðan stolið hitachi batterís vél í kassa með öllu og fullt af borum og dóti,
einnig sds höggvél í svörtum kassa með snjóhúsi utan á (man ekki gerðina)
svo og slípirokkur, stakur.
báðir borvéla kassarnir voru með "Frostmark" límmiðum!
þá var líka tekin verkfærakistan mín, full af verkfærum í minni eigu!
eitthvað var af sérverkfærum þar sem kosta heilmikið og er fjárhagslegt
tjón beint á mig sennilega um 70-80 þúsund! :x Það er fyrir utan vélarnar sem fyrirtækið á !
þetta gerðist í gagnheiði á selfossi!
núna er ég sem sagt gjörsamlega vængbrotinn í vinnunni!

fyrir um 3 árum var kistunni minni líka stolið en kom í leitirnar aftur þegar
löggimann fann eithvað þjófagreni .

eins og fram kemur eru frostmark límmiðar á öllum kössum en sjálfsagt
lítið mál að plokka þá af... eitthvað af verkfærunum mínum er ég búinn að
merkja og þekki þau því vel!

allar upplýsingar vel þegnar!

Author:  Astijons [ Sun 28. Oct 2007 22:00 ]
Post subject: 

þetta er það versta sem maður lent í...

fuck geislaspilara og aðrar græjur... rispur eða felgur...

verkfæri er bara partur af manni ...
það myndi liða yfir mig ef þetta myndi gerast...

ég vona að þetta séu íslendingar sem stálu þessu þá er miklar likar að þetta finnist frekar...

Author:  JonHrafn [ Sun 28. Oct 2007 22:02 ]
Post subject: 

arrrrrrg skepnuskapur

Author:  IvanAnders [ Sun 28. Oct 2007 22:16 ]
Post subject: 

ÞEtta er alveg skelfilegt! :evil:

Var líka stolið frá mér verkfærum um daginn, ekki vinnuverkfæri reyndar, heldur "hobbýværkfærin"

Sem að aftur kemur í veg fyrir að ég geti skrúfað í skúrnum!

Hefði frekar rétt þeim peninginn heldur en að láta þá brjóta hliðarrúðuna í bílnum og taka verkfærin!

Mitt tjón var nú samt minna en þitt virðist vera

Gangi þér vel með þetta, og ég mun hafa augun opin!

Author:  bimmer [ Sun 28. Oct 2007 22:46 ]
Post subject: 

IvanAnders wrote:
ÞEtta er alveg skelfilegt! :evil:

Var líka stolið frá mér verkfærum um daginn, ekki vinnuverkfæri reyndar, heldur "hobbýværkfærin"


Munar nokkuð um að þau séu farin????? :tease:

Author:  IvanAnders [ Tue 30. Oct 2007 00:13 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
IvanAnders wrote:
ÞEtta er alveg skelfilegt! :evil:

Var líka stolið frá mér verkfærum um daginn, ekki vinnuverkfæri reyndar, heldur "hobbýværkfærin"


Munar nokkuð um að þau séu farin????? :tease:


:squint:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/