Page 1 of 1

Þýskaland áfram fyrirheitna landið...

PostPosted: Sun 28. Oct 2007 18:20
by zazou
Umhverfisfasistarnir töpuðu þessari lotu...
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í dag að hraðatakmörk yrðu ekki sett á Autobahn-þjóðvegina í Þýskalandi. Engin hraðatakmörk eru á sumum köflum veganna, en sósíaldemókratar, sem sitja í ríkisstjórn Þýskalands ásamt kristilegum demókrötum, flokki Merkel hafa lagt fram tillögu um að hraðatakmörk verði sett til að minnka útblástur.

Hugmyndin kom upphaflega frá Stavros Dimos, sem fer með umhverfismál hjá ESB, en hugmyndin er sú að með því að draga úr hraðakstri verði um leið dregið úr útbæstri. Sósíaldemókratar hafa tekið undir þessa hugmynd, en Merkel segir að betra skipulag á þjóðvegum landsins geti frekar orðið til þess að draga úr útblæstri, en umferðarteppur og langar raðir eru að hennar mati jafn skaðlegar umhverfinu og hraðaksturinn.


http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1299519

PostPosted: Sun 28. Oct 2007 18:48
by Eggert
=D>

Re: Þýskaland áfram fyrirheitna landið...

PostPosted: Sun 28. Oct 2007 19:01
by bebecar
zazou wrote:Umhverfisfasistarnir töpuðu þessari lotu...
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í dag að hraðatakmörk yrðu ekki sett á Autobahn-þjóðvegina í Þýskalandi. Engin hraðatakmörk eru á sumum köflum veganna, en sósíaldemókratar, sem sitja í ríkisstjórn Þýskalands ásamt kristilegum demókrötum, flokki Merkel hafa lagt fram tillögu um að hraðatakmörk verði sett til að minnka útblástur.

Hugmyndin kom upphaflega frá Stavros Dimos, sem fer með umhverfismál hjá ESB, en hugmyndin er sú að með því að draga úr hraðakstri verði um leið dregið úr útbæstri. Sósíaldemókratar hafa tekið undir þessa hugmynd, en Merkel segir að betra skipulag á þjóðvegum landsins geti frekar orðið til þess að draga úr útblæstri, en umferðarteppur og langar raðir eru að hennar mati jafn skaðlegar umhverfinu og hraðaksturinn.


http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1299519


Mjög frískandi að heyra svona skynsamlega mælt....

Miklu nær að draga úr STAU heldur en að vera að draga úr hámarkshraðanum.

PostPosted: Sun 28. Oct 2007 19:14
by fart
Þetta var aldrei spurning :D Gott að vita til þess að ég þarf ekki nema að keyra 50km til að komast á Unlimited 8)