Page 1 of 2

Eru málarar eða smiðir hérna?

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 22:39
by Astijons
er að spá í með sumarbústað sem er grænn á lit...

en ég vill fá timburlit á hann? svona lakkað?

er það hægt eða? pussa þetta niður og lakka eða?

mér finnst ljótt þegar sumarbústaðir eru málaðir vill hafa þá timburlit
myndi vilja hafa það einsog húsasmiðjan er
Image

eða þarf bara að skipta um timbrið og vesen?

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 22:47
by Astijons
frábært ég hélt að ég væri í offtopic

haha þetta er svo miklu meira en offtopic nefnilega;)

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 23:20
by arnibjorn
Pússa málninguna af þannig að það sést í beran viðin og bera þá á viðinn viðarvörn, annað hvort glæra eða með einhverjum lit....

Ég held það... er enginn málari.. en vann í málningardeildinni í fyrir 1 ári :lol:

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 23:31
by Aron Fridrik
þú getur fengið í flügger efni til að taka alla málingu af viðnum.. þú berð á eitt lag sem er basískt og þrífur.. svo berðu annað sem súrt og þrífur.. þá á ekki að vera nein máling í viðnum eftir..


man samt ekki hvort það var basískt fyrst eða súrt..

en allavegan gerðum þetta við pallinn þegar hann varð allur grár og ljótur í honum botninn eftir einn vetur.. svín virkaði alveg.. eina sem er að þú þarft háþrýstidælu og ekkert víst að það sé svoleiðis í bústaðnum.. :oops:

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 23:40
by Geirinn
Ef mér skjátlast ekki þá væri það væntanlega fyrst súrt og síðan basískt.

PostPosted: Wed 24. Oct 2007 23:41
by Aron Fridrik
má vel vera.. hljóta að koma með step by step fyrir þetta þegar maður kaupir svona

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 00:24
by Aron Andrew
Mig minnir samt að það sé Jatoba utaná Húsasmiðjunni, rándýr harðviður sem verður grár ef honum er ekki haldið vel við, eins og td. í Bláa Lóninu, þar er þetta allt orðið grátt og ljótt.

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 00:37
by Astijons
já Jatoba... ég er alveg rólegur á þvi að skipta um viðinn sko;)

bara vill hafa svona timburlit ... þoli ekki bústaði með málingu...

það er eitthvað svo weird;)

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 00:39
by Alpina
Astijons wrote:já Jatoba... ég er alveg rólegur á þvi að skipta um viðinn sko;)

bara vill hafa svona timburlit ... þoli ekki bústaði með málingu...

það er eitthvað svo weird;)
´

Þetta er örugglega ..........töluvert dýrara.......... en þig grunar

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 01:10
by Astijons
já ég ætla ekki að skipta um viðinn sko.. rólegur á því var ég að meina... ;)

.

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 14:16
by JonFreyr
Hugsanlega ekki 100% akkúrat svar en það er ekkert endilega auðvelt að ná allri málningu úr viði með gróft yfirborð....núna hef ég auðvitað ekki hugmynd um hvers konar viður klæðir sumarhúsið en viður í grófari kantinum er helvíti viðskotaillur þegar kemur að því að leysa upp málningu.

Annars er alveg spurning um að úða hæg-þornandi lími á bústaðinn og láta haustið sjá um að klæða húsið með gulum laufblöðum :) færð ekki meira "natur" en það :lol:

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 14:22
by Astijons
svona hermanna... og fá mér svona hríðskotabyssu á standi í garðinn lika?

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 20:03
by Misdo
þú pússar málinguna bara upp og svo lakkaru yfir og bæsar

PostPosted: Thu 25. Oct 2007 20:22
by Eggert
Misdo wrote:þú pússar málinguna bara upp og svo lakkaru yfir og bæsar


Já, en hvað ef viðurinn er grófur? Bara taka góðan mánuð uppfrá með slípivél og taka 5mm af öllu? :lol:

PostPosted: Fri 26. Oct 2007 00:27
by Astijons
snilld snilld snilld....

held að hann sé ekkert grófur sko...