Kastaðist á kyrrstæðan bíl
Sautján ára kappa á tryllitæki, brást bogalistin þegar hann var að reykspóla í hringi á bílastæði útgerðarfélagsins Brims á Akureyri upp úr miðnætti. Hann missti stjórn á bílnum, sem kastaðist á kyrrstæðan bíl og þaðan upp í steinbeð, þar sem hann hafnaði á gamalli skipsskrúfu, sem þar er til skrauts.
Þrátt fyrir ósköpin slapp pilturinn ómeiddur en bíllinn var svo illa leikinn að lögregla klippti af honum númerin sem tjónabíl, og var hann fjarlægður með kranabíl.
Gaman hve mikið blaðamenn visir.is kanna heimildir sínar áður en þeir skrifa fréttir..
Baaaara svona vildi koma því að, að þetta TRYLLITÆKI sem var að REYKSPÓLASPÓLA Í HRINGI á.. var víst Toyota Carina að taka handbremsubeygju



