Page 1 of 1

Æjj, góður hrekkur?

PostPosted: Mon 15. Oct 2007 14:16
by ValliFudd
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1297065

Innlent | mbl.is | 15.10.2007 | 14:04
Laxerolía í samlokum í Brekkubæjarskóla á Akranesi

Síðastliðinn fimmtudag urðu nokkrir nemendur tíunda bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi uppvísir að því að spilla samlokum sem þeir seldu í brauðsölu innan skólans. Settu þeir laxerolíu á nokkrar samlokur og seldu þær. Nokkrir nemendur veiktust í kjölfarið. Greint er frá þessu á Skessuhorni.

Skólayfirvöld fullvissa aðra nemendur og forráðamenn þeirra um að slíkt eigi ekki að geta endurtekið sig. Í tilkynningu frá skólayfirvöldum segir m.a: „Þegar hefur verið tekið á þessu máli hér í skólanum með fullum þunga. Við erum búin að komast fyrir rót vandans og höfum gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir að nokkuð þessu líkt geti nokkurn tíma hent aftur. Við höfum breytt öllu skipulagi á afgreiðslu í brauðsölunni, auk þess sem hún var þrifin í hólf og gólf.”

Þá segir einnig í tilkynningu skólayfirvalda að nemendur unglingadeildar sem hafa keypt af brauðsölunni fram að þessu geta verið þess fullvissir að fullkomlega óhætt verður að versla þar héðan í frá.

Fréttavefurinn Skessuhorn

PostPosted: Mon 15. Oct 2007 14:30
by zazou
:rollinglaugh:

PostPosted: Mon 15. Oct 2007 14:31
by Aron Andrew
hahaha

klassískt :lol:

PostPosted: Mon 15. Oct 2007 14:37
by bjahja
Þeir samt klikkuðu alveg, það á ekkert að gera þetta við nemendur heldur kennarana maður. Frí í tímum ftw

PostPosted: Mon 15. Oct 2007 15:33
by siggir
:rofl:

Vildi að mér hefði dottið þetta í hug þegar ég vann við samlokugerð í Flúðaskóla