Gumball underground?
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1293445
Erlent | mbl.is | 26.9.2007 | 12:10
Ökuníðingar á ferð milli Noregs og Svíþjóðar
Sænska lögreglan stöðvaði átta bíla sem talið er að taki þátt í ólöglegum kappakstri frá Ósló til Stokkhólms. Vegfarendur á E18 hraðbrautinni milli Årjäng og Karldstad segjast hafa séð 10 bíla á 200 km hraða í almennri umferð á leið til Stokkhólms. Lögreglan sleppti flestum þeim sem stöðvaðir voru, þar sem þeir óku á löglegum hraða á þeim stað þar sem radarmæling fór fram.
Lögreglan sleppti flestum þeim sem stöðvaðir voru þar sem þeir óku á löglegum hraða á þeim stað þar sem radarmæling fór fram. Samkvæmt Aftonbladet var einn hinna stöðvuðu þó sektaður fyrir að vera með radartruflara framan á sínum bíl.
Margir bílanna voru að sögn sænsku lögreglunnar með erlend númer og er talið líklegt að þarna séu á ferð ökuþórar sem taka þátt í ólöglegum kappakstri um Evrópu.
