bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 01. May 2025 21:33

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 08:49 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 26. Aug 2003 22:01
Posts: 6
Image

Átján ára unglingur í Minisota í Bandaríkjunum, Jeffrey Lee Parson var í gær ákærður fyrir að forrita og dreifa skæðum tölvuormi sem valdið hefur usla víða um að undanförnu.
Þetta er fyrsta ákæran sem birt er vegna ítrekaðra árása tölvuorma í sumar. Talið er að vírusar liðinna vikna hafi sýkt hálfa milljón tölva, hið minnsta.
Parson var handtekinn á föstudag, en Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, neitar að gefa upp hvort fleiri handtökur séu væntanlegar. Parson sætir svokallaðri rafrænni gæslu á heimili sínu, það er þannig að á hann hefur verið settur búnaður hvar hann er hverju sinni.
Parson er óheimilt að yfirgefa heimilið sitt nema til að sækja skóla eða leita læknis. Þá er Parson óheimilt að nota netið meðan mál hans er í ransókn. Parson játaði við yfirheyrslur að hafa hannað upphaflegan "Blaster-Vírus".
Siðan bjó hann til "Blaster B-Vírus". Ótal afbrygði fylgdu svo í kjölfarið og ollu tjóni sem áætlað hefur verið tæpar 900 milljónir króna.
Parson á að koma fyrir dómara á ný 17. september. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi og gæti þurft að greiða tuttugu milljónir króna í sekt.

p.s. Tekið af www.dci.is

_________________
Hello


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group