Page 1 of 2

Stöð 2 er alveg ótrúleg á köflum

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:12
by krullih
Ekki nóg með að maður þurfi að borga himinháar upphæðir til að horfa á efni sem er þegar orðið gamalt úti og / eða var Cancel-að eftir fyrstu seríu en þeir auglýsa sem þætti sem slógu í gegn þá fylltu þeir alveg mælinn núna.

Auglýstu Kompáss þáttinn útum allt, létu mann fá áhuga - og auðvitað settist maður við tækið..

Nei! Kompáss er núna kominn í læsta/lokaða dagskrá - þeir sem voru með svoo gott orð á sér og fengu meira að segja Eddu verðlaunin fyrir góða skýringaþætti

Greinilegt að um leið og þeir fengu viðurkenningu ákveða þeir að rukka um þetta

Finnst þetta absurd, svo vægt sé tekið til orða!

*einn pirraður*

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:24
by Einarsss
mun aldrei fá mér stöð 2... næ í allt mitt efni á netinu í brilliant gæðum.

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:30
by Stanky
einarsss wrote:mun aldrei fá mér stöð 2... næ í allt mitt efni á netinu í brilliant gæðum.


*5*

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:33
by krullih
Enda geri ég það sama - en kompáss er verðugt efni - en að loka því? AARG

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:39
by pallorri
Sagðistu ekki vera með stöð2? Hvað ertu þá að væla með lokaða dagskrá?

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 22:45
by Einarsss
Þessi kompás þáttur verður án vafa kominn á torrent.is mjög fljótlega

PostPosted: Tue 18. Sep 2007 23:19
by KFC
mér synist vera hægt að horfa á hann á visir.is

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 00:09
by ///MR HUNG
Hefur hann ekki alltaf verið læstur :roll:

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 08:07
by jens
Já nákvæmlega, hélt að hann væri í ruglaðri dagskrá. Kaupa áskrift.

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 10:02
by ValliFudd
Var ekki aðalmálið í auglýsingunum í fyrra "Kompás, í OPINNI DAGSKRÁ á Stöð 2!" ? :) Eitthvað rámar mig í það...

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 10:17
by ///M
Það er náttúrulega ALGJÖRLEGA ÓÞOLANDI að fyrirtæki reyni að standa undir rekstri :burn:

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 10:19
by Kristjan
Það var bara einn þáttur eða eitthvað. Það hefur alltaf verið hægt að horfa á þetta á veftv á visi.is

skil ekki hvað þið eruð að kvarta.

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 11:13
by SteiniDJ
Fatta Stöð 2 ekki alveg.. Maður er að borga himinháar upphæðir fyrir þetta til þess að sjá "besta sjónvarpsefni sem Ísland býður upp á". En síðan í miðjum þættinum færðu auglýsingar beint í smettið á þér. :evil:

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 11:14
by bjahja
Damn hvað þið vælið mikið :lol:

PostPosted: Wed 19. Sep 2007 11:49
by Stanky
Stöð 2 eru heimskulegustu kaup í heimi.

Íslenska sjónvarpsefnið þarna er hörmulegt sem og það erlenda.

Skil ekki afhverju fólk fær sér ekki Sky Digital, kostar jafn mikið, ef ekki minna og maður fær að minnsta kosti 60 GÓÐAR sjónvarpsstöðvar.

En, svona er þetta, margir sem vilja borga 5000kr til að sjá Audda Blö, Jón útbrenda Gnarr og Pétur Jóhann.....