Ekki nóg með að maður þurfi að borga himinháar upphæðir til að horfa á efni sem er þegar orðið gamalt úti og / eða var Cancel-að eftir fyrstu seríu en þeir auglýsa sem þætti sem slógu í gegn þá fylltu þeir alveg mælinn núna.
Auglýstu Kompáss þáttinn útum allt, létu mann fá áhuga - og auðvitað settist maður við tækið..
Nei! Kompáss er núna kominn í læsta/lokaða dagskrá - þeir sem voru með svoo gott orð á sér og fengu meira að segja Eddu verðlaunin fyrir góða skýringaþætti
Greinilegt að um leið og þeir fengu viðurkenningu ákveða þeir að rukka um þetta
Finnst þetta absurd, svo vægt sé tekið til orða!
*einn pirraður*



