Shadowline-aði felgurnar ;)

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Shadowline-aði felgurnar ;)

Postby Kristjan PGT » Sun 16. Sep 2007 21:31

Datt í hug að setja þetta hingað inn þar sem menn eru svo helvíti mikið fyrir svart hérna

Tók mig til og shine-aði felgurnar á súkkunni fyrir veturinn. Þær voru orðnar helvíti lúnar, flögnuð glæran og komin oxitering í álið..

Ég sandblés þær og sprautaði sjálfur, með dekkin á. Smá skíta mix en þetta kemur mjög vel út og það er ekki séns að sjá það að dekkin hafi ekki verið tekin af. Þið sem eigið loftpressu og eruð í sandblásturshugleiðingum ekki hika við að dúndra á felgurnar..Easy Peasy! Keypti sand í Jákó, könnu í Byko og svo til að leysa upp alla málninguna/glæruna á felgunum keypti ég Uppleysir í húsasmiðjunni...og það er mesta eitur sem ég hef komist í kynni við...ég eiginlega hló bara þegar ég sá hvernig glæran kraumaði á felgunum og lak svo af! Ótrúlegur andskoti!

en hér er Jöklatryllirinn eins og hann var

Image


Og hér eru svo tvær eftir sprautun ...Mér finnst þetta GEÐVEIKT svona svart og brýtur þetta aðeins upp.


Image

Image
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Postby Stanky » Sun 16. Sep 2007 21:36

Hvaða ógeð er þetta sem er fyrir ofan dekkin? :)

kv,
haukur
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby JonHrafn » Sun 16. Sep 2007 21:49

Stanky wrote:Hvaða ógeð er þetta sem er fyrir ofan dekkin? :)

kv,
haukur


What he said :lol:

Misjafn er smekkur manna, það er víst.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby Einsii » Sun 16. Sep 2007 21:50

Mig langar í svona V6 súkku breitta.. snilld að leika sér á þessu :)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Stanky » Sun 16. Sep 2007 21:54

Er samt meira að grínast sko.

Ekkert ílla meint :)

En felgurnar eru _miklu_ flottari svona og flottur contrast á svona gráum bíl.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Kristjan PGT » Sun 16. Sep 2007 21:59

Strákar strákar...þið getið ekki fundið fallegri bíl sem er jafn æðislegur í hlutverk fjallajeppa sem er ódýr í rekstri..sanniði til :)

fyrir utan það að það eru svo helv. lítið af kellingum uppá jökli að checka mann út ;)

*edit*

I rest my case ;) hahah

Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 30 guests

cron