bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Er þetta ekki orðið fullmikið bull. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23485 |
Page 1 of 2 |
Author: | adler [ Wed 01. Aug 2007 00:11 ] |
Post subject: | Er þetta ekki orðið fullmikið bull. |
http://www.visir.is/article/20070801/FR ... /108010122 Það er nú ekkert grín að vera ökumaður í dag maður er orðinn glæpamaður áður en að maður veit af . Ekki að ég sé að halda því fram að það sé í lagi að aka hraðar en 30 þar sem það er en komon hvar eru mannleg skekkjumörk í þessu öllu saman. Fattið þið hvað ég er að fara ![]() |
Author: | iar [ Wed 01. Aug 2007 00:17 ] |
Post subject: | |
Var ekki bara eitthvað typo í greininni sem er núna búið að laga? Það er bara talað um bíla á 56+ á 30 götu. Eða er ég að misskilja eitthvað? Quote: Á tvöföldum hámarkshraða
Lögreglumál Fimm ökumenn voru teknir á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúagötu í Breiðholti um helgina. Leyfilegur hámarkshraði í götunni er 30 kílómetrar á klukkustund. Að sögn lögreglunnar mældust bílarnir á bilinu 60 til 70 kílómetra hraða. Þeir sem mældust á bilinu 56 til 60 kílómetra hraða þurfa að greiða 25 þúsund krónur í sekt. Þeir sem mældust á bilinu 61 til 65 kílómetra hraða fá hins vegar 45 þúsund króna sekt og eru sviptir ökuleyfi í þrjá mánuði. Það er því talsverður munur á því hvort ökumenn mælist á 60 kílómetra hraða eða á 61 kílómetra hraða. Alls voru tæplega sextíu ökumenn teknir um helgina fyrir of hraðan akstur á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem hraðast ók var maður á fertugsaldri sem var tekinn á 153 kílómetra hraða sunnan Hafnarfjarðar. Hann má búast við að missa ökuleyfið og borga yfir hundrað þúsund krónur í sekt. Þá var sautján ára ökumaður stöðvaður í Garðabæ á 143 kílómetra hraða. Fær hann háa sekt og missir jafnvel ökuréttindin. |
Author: | Bjarkih [ Wed 01. Aug 2007 11:59 ] |
Post subject: | |
Þessi sektahækkun virðist nú ekki alveg vera að skila sér í bættri umferðarmenningu síðann. Allavega stendur á forsíðunni á mogganum í dag að umferðarlagabrotum fari sífellt fjölgandi. En auðvitað er ríkið bara happy með það, meiri peningur í kassann ![]() |
Author: | Danni [ Wed 01. Aug 2007 12:01 ] |
Post subject: | |
Þetta er komið í rugl. Ég er ekki að réttlæta hraðakstur en þegar að menn eru farnir að keyra á 80 á 90 svæðum, einsog ég lendi töluvert oftar í á Reykjanesbrautinni núna en áður, bara til þess að renna ekki óvart uppí 10þús króna sekt í smá brekku þá er það merki að þetta er komið yfir strikið! Markmiðið var jú að lækka meðalhraðann en ekki niðurfyrir hámarkshraða! |
Author: | gunnar [ Wed 01. Aug 2007 12:04 ] |
Post subject: | |
Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti. Sem mér finnst til skammar! |
Author: | X-ray [ Wed 01. Aug 2007 12:05 ] |
Post subject: | |
Þetta er ekki GRÍN hvernig kerfið er núna.. Á tvo félaga... Annar þeirra var nú tekinn um daginn á 63 í 30 götu og er að skila inn skirteininu í 3 mánuði núna á næstuni. hinn var nappaður á 96 í 50 götu en missir ekki réttinndinn ? WTF |
Author: | zazou [ Wed 01. Aug 2007 12:31 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.
Sem mér finnst til skammar! Nákvæmlega. Ég renndi yfir þessa fínu skýrslu um orsakir umferðaslysa á síðasta ári og þar spiluðu áfengi og vímuefni sláanlega stórt hlutverk. |
Author: | IngóJP [ Wed 01. Aug 2007 18:17 ] |
Post subject: | |
þetta er komið ansi mikið út fyrir kassan.... Var að taka frammúr í rólegheitum skotið á mig hirtur fyrir 106 ![]() konan var mæld í gær á 111 þegar hún var nýbúin að taka frammúr og var hirt ![]() ég ákvað að hringja í Lögregluna á Selfossi og ræða við þá um þetta... Fékk þau svör að ég mætti taka frammúr á allt að 99 km/h svo byrja þeir að sekta... og ef ekki er hægt að taka frammúr bifreiðinni á 99 km/h þá á maður ekki að vera að því ![]() Semsagt bíll sem ekur á 85 og ég ætla frammúr hratt og örugglega þá er ég að tala um kannski 120 sem er hratt en ekki öfgahraði þá má ég það ekki ég verð að gera það á 99 km/h |
Author: | adler [ Wed 01. Aug 2007 18:31 ] |
Post subject: | |
Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði . Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann. Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. ![]() ![]() |
Author: | adler [ Wed 01. Aug 2007 18:39 ] |
Post subject: | |
http://us.is/id/4501 Sá þetta þarna http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=23498 |
Author: | Geirinn [ Wed 01. Aug 2007 18:49 ] |
Post subject: | |
adler wrote: Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði .
Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann. Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. ![]() ![]() Þú meinar að leiðin til Keflavíkur yrði stórhættuleg á einbreiðu köflunum því allir væru stanslaust að taka framúr. Sem betur fer nálgast sá tími að öll brautin verður tvöföld ![]() |
Author: | Tommi Camaro [ Wed 01. Aug 2007 18:49 ] |
Post subject: | |
adler wrote: Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði .
Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann. Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. ![]() ![]() WORD ![]() ![]() ![]() ég er til hvernar sem er Væri gaman að stofna svona samkomu undir bmwkrafti þar sem BMW fer ekki fögrum orðum í blöðum |
Author: | Vargur [ Wed 01. Aug 2007 19:00 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.
Sem mér finnst til skammar! Ha !? Aðalbanamein í umferðinni áfengi og eiturlyf ? Getur þú frætt mig um hvað það á við í mörgum af þeim 5 banaslysum sem hafa orðið í umferðinni á árinu ? |
Author: | Kristjan PGT [ Wed 01. Aug 2007 19:13 ] |
Post subject: | |
Dúfan wrote: gunnar wrote: Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti. Sem mér finnst til skammar! Ha !? Aðalbanamein í umferðinni áfengi og eiturlyf ? Getur þú frætt mig um hvað það á við í mörgum af þeim 5 banaslysum sem hafa orðið í umferðinni á árinu ? Þetta ár er ekki það eina sem er skoðað! Ég meina..það varð ekkert banaslys í gær...hlýtur að vera í lagi að skella í sig einum pela af rússnensku vatni og skella sér í slide! |
Author: | trolli [ Wed 01. Aug 2007 22:04 ] |
Post subject: | |
Athugið eitt... flest bílslys eru ekki vegna HRAÐAKSTURS eins og margir á þessu fagra landi vilja halda. við erum jú mannleg? svefnleysi, ekki að fylgjast með. eða jafnvel fá sér kóksopa eða lélegt skyggni sérstaklega úti á landi og margt fleira. þetta eru aðal orsök slysa og nei ég er ekki að styðja hraðakstur en hinsvegar finnst mér lögreglan megi gefa fólki breik ef menn eru að taka fram úr bíl og maður vill gera það sem sneggst. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |