Er þetta ekki orðið fullmikið bull.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Er þetta ekki orðið fullmikið bull.

Postby adler » Wed 01. Aug 2007 00:11

http://www.visir.is/article/20070801/FR ... /108010122

Það er nú ekkert grín að vera ökumaður í dag maður er orðinn glæpamaður áður en að maður veit af .

Ekki að ég sé að halda því fram að það sé í lagi að aka hraðar en 30 þar sem það er en komon hvar eru mannleg skekkjumörk í þessu öllu saman.


Fattið þið hvað ég er að fara :?:
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby iar » Wed 01. Aug 2007 00:17

Var ekki bara eitthvað typo í greininni sem er núna búið að laga? Það er bara talað um bíla á 56+ á 30 götu. Eða er ég að misskilja eitthvað?


Á tvöföldum hámarkshraða
Lögreglumál Fimm ökumenn voru teknir á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúagötu í Breiðholti um helgina.

Leyfilegur hámarkshraði í götunni er 30 kílómetrar á klukkustund. Að sögn lögreglunnar mældust bílarnir á bilinu 60 til 70 kílómetra hraða. Þeir sem mældust á bilinu 56 til 60 kílómetra hraða þurfa að greiða 25 þúsund krónur í sekt.

Þeir sem mældust á bilinu 61 til 65 kílómetra hraða fá hins vegar 45 þúsund króna sekt og eru sviptir ökuleyfi í þrjá mánuði. Það er því talsverður munur á því hvort ökumenn mælist á 60 kílómetra hraða eða á 61 kílómetra hraða.

Alls voru tæplega sextíu ökumenn teknir um helgina fyrir of hraðan akstur á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem hraðast ók var maður á fertugsaldri sem var tekinn á 153 kílómetra hraða sunnan Hafnarfjarðar. Hann má búast við að missa ökuleyfið og borga yfir hundrað þúsund krónur í sekt.

Þá var sautján ára ökumaður stöðvaður í Garðabæ á 143 kílómetra hraða. Fær hann háa sekt og missir jafnvel ökuréttindin.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Bjarkih » Wed 01. Aug 2007 11:59

Þessi sektahækkun virðist nú ekki alveg vera að skila sér í bættri umferðarmenningu síðann. Allavega stendur á forsíðunni á mogganum í dag að umferðarlagabrotum fari sífellt fjölgandi. En auðvitað er ríkið bara happy með það, meiri peningur í kassann :evil:
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Danni » Wed 01. Aug 2007 12:01

Þetta er komið í rugl. Ég er ekki að réttlæta hraðakstur en þegar að menn eru farnir að keyra á 80 á 90 svæðum, einsog ég lendi töluvert oftar í á Reykjanesbrautinni núna en áður, bara til þess að renna ekki óvart uppí 10þús króna sekt í smá brekku þá er það merki að þetta er komið yfir strikið! Markmiðið var jú að lækka meðalhraðann en ekki niðurfyrir hámarkshraða!
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby gunnar » Wed 01. Aug 2007 12:04

Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.

Sem mér finnst til skammar!
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby X-ray » Wed 01. Aug 2007 12:05

Þetta er ekki GRÍN hvernig kerfið er núna..

Á tvo félaga... Annar þeirra var nú tekinn um daginn á 63 í 30 götu og er að skila inn skirteininu í 3 mánuði núna á næstuni. hinn var nappaður á 96 í 50 götu en missir ekki réttinndinn ? WTF
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik

Postby zazou » Wed 01. Aug 2007 12:31

gunnar wrote:Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.

Sem mér finnst til skammar!

Nákvæmlega. Ég renndi yfir þessa fínu skýrslu um orsakir umferðaslysa á síðasta ári og þar spiluðu áfengi og vímuefni sláanlega stórt hlutverk.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby IngóJP » Wed 01. Aug 2007 18:17

þetta er komið ansi mikið út fyrir kassan....

Var að taka frammúr í rólegheitum skotið á mig hirtur fyrir 106 :lol:

konan var mæld í gær á 111 þegar hún var nýbúin að taka frammúr og var hirt :lol:

ég ákvað að hringja í Lögregluna á Selfossi og ræða við þá um þetta...

Fékk þau svör að ég mætti taka frammúr á allt að 99 km/h svo byrja þeir að sekta... og ef ekki er hægt að taka frammúr bifreiðinni á 99 km/h þá á maður ekki að vera að því :roll:

Semsagt bíll sem ekur á 85 og ég ætla frammúr hratt og örugglega þá er ég að tala um kannski 120 sem er hratt en ekki öfgahraði þá má ég það ekki ég verð að gera það á 99 km/h
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby adler » Wed 01. Aug 2007 18:31

Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði .

Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann.

Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. :lol: :idea:
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby adler » Wed 01. Aug 2007 18:39

gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby Geirinn » Wed 01. Aug 2007 18:49

adler wrote:Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði .

Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann.

Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. :lol: :idea:


Þú meinar að leiðin til Keflavíkur yrði stórhættuleg á einbreiðu köflunum því allir væru stanslaust að taka framúr. Sem betur fer nálgast sá tími að öll brautin verður tvöföld :)
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Tommi Camaro » Wed 01. Aug 2007 18:49

adler wrote:Ég fékk nú þá hugmynd um daginn að það væri réttast að stofna félagskapin "Hinir löglegu" og fara í stórum hópum um gatnakerfið á algjörlega löglegum hraða og sjá hvernig umferða öngþveitið yrði .

Ég er hræddur um að það væri ekki langur tími liðinn þangað til að lögreglan væri kominn á svæðið til að athuga hvað orsakaði vandann.

Ímyndið ykkur ef að það væri svo hægt að koma saman hóp sem væri kannski svona sextíu bílar saman og allir myndu keyra á löglegum hraða t.d.til keflavíkur það yrði nú ljóta kaosið,en væri samt gaman. :lol: :idea:

WORD :!: :!: :!:
ég er til hvernar sem er
Væri gaman að stofna svona samkomu undir bmwkrafti þar sem BMW fer ekki fögrum orðum í blöðum
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby Vargur » Wed 01. Aug 2007 19:00

gunnar wrote:Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.

Sem mér finnst til skammar!


Ha !? Aðalbanamein í umferðinni áfengi og eiturlyf ? Getur þú frætt mig um hvað það á við í mörgum af þeim 5 banaslysum sem hafa orðið í umferðinni á árinu ?
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Kristjan PGT » Wed 01. Aug 2007 19:13

Dúfan wrote:
gunnar wrote:Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.

Sem mér finnst til skammar!


Ha !? Aðalbanamein í umferðinni áfengi og eiturlyf ? Getur þú frætt mig um hvað það á við í mörgum af þeim 5 banaslysum sem hafa orðið í umferðinni á árinu ?


Þetta ár er ekki það eina sem er skoðað! Ég meina..það varð ekkert banaslys í gær...hlýtur að vera í lagi að skella í sig einum pela af rússnensku vatni og skella sér í slide!
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Postby trolli » Wed 01. Aug 2007 22:04

Athugið eitt... flest bílslys eru ekki vegna HRAÐAKSTURS eins og margir á þessu fagra landi vilja halda. við erum jú mannleg? svefnleysi, ekki að fylgjast með. eða jafnvel fá sér kóksopa eða lélegt skyggni sérstaklega úti á landi og margt fleira. þetta eru aðal orsök slysa og nei ég er ekki að styðja hraðakstur en hinsvegar finnst mér lögreglan megi gefa fólki breik ef menn eru að taka fram úr bíl og maður vill gera það sem sneggst.
trolli
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Sun 11. Jun 2006 00:20

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 87 guests