Að múta og kúga? (visir.is)

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Að múta og kúga? (visir.is)

Postby ValliFudd » Fri 06. Jul 2007 16:41

Vísir, 06. júlí. 2007 15:54

Maður handtekinn í Hollandi fyrir að múta foreldrum Madeleine McCann

Hollenska lögreglan hefur handtekið 39 ára gamlan karlmann fyrir að reyna að kúga fé út úr foreldrum Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á sumardvalarstaðnum Praia da Luz í Portúgal í byrjun maí.

Hann krafðist hárra fjárhæða í skiptum fyrir upplýsingar sem hann sagðist hafa um dvalarstað stúlkunnar og mannræningja hennar. Maðurinn játaði eftir yfirheyrslur að hafa skáldað söguna upp.

Maðurinn sem er atvinnulaus sendi foreldrum Madeleine sex tölvuskeyti frá internetkaffihúsi og atvinnuleysisskrifstofu í Hollandi. Hann var handtekinn í Eindoven á miðvikudag. Maðurinn verður líklega ákærður fyrir mútur og á yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi.

Á Spáni eru málaferli hafin gegn pari sem einnig reyndi að kúga fé út úr foreldrum Madeleine í lok júní.


Uhm... haa? þetta var á visir.is..

http://www.visir.is/article/20070706/FRETTIR02/70706055

Enn ein villan? skil ekki alveg...

Það er talað um í titli fréttar að hann hafi verið handtekinn fyrir að múta þeim, svo neðar talað um að hann hafi verið að kúga fé úr þeim.. en svo verður hann ákærður fyrir mútur :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Fri 06. Jul 2007 16:43

Það eru auðvitað bara börn sem skrifa inn á þennan fréttavef þeirra.
Virkilega slök vinnubrögð oft á tíðum, kemur frekar illa út!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Vargur » Fri 06. Jul 2007 20:42

Þetta Fréttablaðs/Vísis lið er hvorki læst né skrifandi.
Ég lenti í smá símaviðtali við einn þarna, Freir Gígja heitir kappinn, textinn sem birtist svo í blaðinu var ekkert nema stafsetningarvillur og sem dæmi náði hann að hafa 2 villur í sama orðinu á tveimum stöðum í greininni.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Danni » Fri 06. Jul 2007 20:52

Dúfan wrote:Þetta Fréttablaðs/Vísis lið er hvorki læst né skrifandi.
Ég lenti í smá símaviðtali við einn þarna, Freir Gígja heitir kappinn, textinn sem birtist svo í blaðinu var ekkert nema stafsetningarvillur og sem dæmi náði hann að hafa 2 villur í sama orðinu á tveimum stöðum í greininni.


Freyr ekki Freir.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Vargur » Fri 06. Jul 2007 20:57

Freyr ekki Freir.


Ha ha, rétt hjá þér, maður er litlu skárri sjálfur. :?
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby bjahja » Sat 07. Jul 2007 02:07

Grínlaust, visir.is og mbl.is til skammar.
Hvernig væri að lesa yfir það sem er sett þarna inná að minnsta kosti einusinni :roll:
Last edited by bjahja on Sat 07. Jul 2007 11:36, edited 1 time in total.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby gunnar » Sat 07. Jul 2007 06:21

bjahja wrote:Grínlaust, visir.is og mbl.is til skammar.
Hvernig væri að lesa yfir það sem er sett inn þarna inná að minnsta kosti einusinni :roll:


Mbl.is hefur einmitt farið alveg hríðversnandi. Var ótrúlega fínn miðill fyrir nokkrum árum en núna er farið að bera ógurlega mikið á aulavillum sem eiga ekki að sjást þar.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Vargur » Sat 07. Jul 2007 14:15

Talandi um Mbl.is þá er bloggið sem birtist með fréttunum farið að fara hrikalega í taugarnar á mér, þar bulla misvitrir sófadómarar um allt sem þeir hafa ekkert vit á og er hreinlega orðið pirrandi að lesa bullið frá þessu liði.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby zazou » Sat 07. Jul 2007 18:03

Dúfan wrote:Talandi um Mbl.is þá er bloggið sem birtist með fréttunum farið að fara hrikalega í taugarnar á mér, þar bulla misvitrir sófadómarar um allt sem þeir hafa ekkert vit á og er hreinlega orðið pirrandi að lesa bullið frá þessu liði.

Nákvæmlega! 90% af moggabloggurunum eru bara að henda inn 1-3 setninga kommentum sem eru 'voða' fyndnar, stundum bara 1-2 orð.

Smáborgaralegt blog - zero innihald. :lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby IceDev » Sat 07. Jul 2007 18:05

Af hverju ekki MBL bloggari með ZERO skoðanir?
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Vargur » Sun 08. Jul 2007 18:54

IceDev wrote:Af hverju ekki MBL bloggari með ZERO skoðanir?


ha ha, snilld !
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 78 guests