Page 1 of 1

Svolítið heitt í USA....

PostPosted: Fri 06. Jul 2007 10:30
by ValliFudd
mbl.is wrote:Gríðarlegur hiti er víða á vesturströnd Bandaríkjanna og hefur hitinn víða farið yfir 40 gráður í forsælu.

Í nokkrum ríkjum hefur almenningur verið beðinn um að halda sig innandyra yfir heitasta tímann en í Baker í Kaliforníu fór hitinn í 52 gráður í gær og í Phoenix í Arizona var 46 stiga hiti í gær. Áfram er spáð miklum hita í dag.

Í Las Vegas, þar sem hitinn var 47 gráður síðdegis í gær fór rafmagn af vegna álags. Jafnvel í Stanley í Idaho, sem er í yfir 1.800 metra hæð yfir sjávarmáli, var sett hitamet í gær þegar hitinn fór í 33 gráður. Í dag er gert ráð fyrir að hitinn verði enn meiri þar, á einum svalasta stað Bandaríkjanna.

PostPosted: Fri 06. Jul 2007 10:57
by HAMAR
Ég var staddur í Denver, Colorado '87 "one mile high city"
og hitinn fór ekki undir 40 gráður í rúma viku,
ég er enn með ör eftir sólbrunan :(

PostPosted: Fri 06. Jul 2007 11:09
by X-ray

PostPosted: Fri 06. Jul 2007 11:29
by Danni
Cool og ég er að fara til USA bráðum :D Hlakka til :D:D:D