mbl.is wrote:Gríðarlegur hiti er víða á vesturströnd Bandaríkjanna og hefur hitinn víða farið yfir 40 gráður í forsælu.
Í nokkrum ríkjum hefur almenningur verið beðinn um að halda sig innandyra yfir heitasta tímann en í Baker í Kaliforníu fór hitinn í 52 gráður í gær og í Phoenix í Arizona var 46 stiga hiti í gær. Áfram er spáð miklum hita í dag.
Í Las Vegas, þar sem hitinn var 47 gráður síðdegis í gær fór rafmagn af vegna álags. Jafnvel í Stanley í Idaho, sem er í yfir 1.800 metra hæð yfir sjávarmáli, var sett hitamet í gær þegar hitinn fór í 33 gráður. Í dag er gert ráð fyrir að hitinn verði enn meiri þar, á einum svalasta stað Bandaríkjanna.


