Page 1 of 1

Hraðamælingar úr ÞYRLU?!?

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 19:42
by ValliFudd
Ég var búinn að heyra um svona í Danmörku en nú var þetta prófað á Íslandi :shock:

http://www.visir.is/article/20070701/FRETTIR01/70701044

Um helgina hefur lögreglan lagt þunga á að fylgjast með hraðakstri og til þess notaði hún þyrlu Landhelgisgæslunnar. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi segir að þyrlan hafi skilað mjög góðum árangri og hafi verið notuð víða um land um helgina.


Í fréttum var sýnt þegar þeir voru að hraðamæla úr þyrlunni..:)

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 19:50
by Misdo
er einhvað komið út hvað margir voru teknir ?

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 21:25
by Kull
Þetta var fyrst gert fyrir mörgum árum hér á landi. Þá þótti þetta hafa sýnt ágætann árangur en þetta kostar mjög mikið.

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 22:07
by Geirinn
Ég efast um að það sé grundvöllur fyrir þessu nema á spes dögum.

Þeir voru þó að mæla úr þyrlu þegar ég keyrði til baka í bæinn í kvöld en virtust vera að hætta.

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 22:12
by Jón Ragnar
Held að núna fari einhverjir hraðaakstursfíklar að kaupa sér Stingereldflaugar

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 22:14
by Alpina
Jón Ragnar wrote:Held að núna fari einhverjir hraðaakstursfíklar að kaupa sér Stingereldflaugar


ódýrt ???'

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 22:41
by Hlynzi
Alpina wrote:
Jón Ragnar wrote:Held að núna fari einhverjir hraðaakstursfíklar að kaupa sér Stingereldflaugar


ódýrt ???'


Flugeldar eru mun rekstrarvænni kostur.

PostPosted: Sun 01. Jul 2007 22:53
by Jón Ragnar
Alpina wrote:
Jón Ragnar wrote:Held að núna fari einhverjir hraðaakstursfíklar að kaupa sér Stingereldflaugar


ódýrt ???'


Image

Ef sektir hætta ekki að hækka þá fer að borga sig að flytja þetta inn :D

PostPosted: Tue 03. Jul 2007 16:16
by nitro
En hvernig er það ef þú ferð fram á að sjá mælinguna? Ætla þeir þá að lenda þyrlunni á þjóðveginum?
Það eru góðar likur á því að sektinn yrði feld niður ef einhver myndi reyna á að fara með þetta fyrir dóm.

PostPosted: Tue 03. Jul 2007 16:43
by Kull
nitro wrote:En hvernig er það ef þú ferð fram á að sjá mælinguna? Ætla þeir þá að lenda þyrlunni á þjóðveginum?
Það eru góðar likur á því að sektinn yrði feld niður ef einhver myndi reyna á að fara með þetta fyrir dóm.


Veit ekki til þess að þú hafir neinn lagalegann rétt til að sjá mælinguna, nóg að tvær löggur sjái.

Einnig gætu þeir verið með myndbandstöku í gangi þegar þeir mæla.

PostPosted: Tue 03. Jul 2007 17:11
by ValliFudd
Það er búið að sanna sig fyrir rétti að 1 lögga með post-it miða með hraða og bílnúmeri krotað á vinnur 3 vitni... :roll: Eins heimskulegt og það hljómar...