Page 1 of 3

Háþrýstidælur

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 16:17
by arnibjorn
Mig langar svo að kaupa mér háþrýstidælu þannig að ég geti bara þrifið bílinn minn heima á plani í staðinn fyrir að fara alltaf uppá löður... :P

Hvernig dælu mynduð þið mæla með og hvað ætti maður að fá sér dælu með mörg bör sem myndi bara vera notuð í að þrífa bíla og þannig dæmi?

Hefur einhver eitthvað vit á þessu? :lol:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 16:30
by Arnarf
Vinur minn á svona sem fer upp í 130bör minnir mig

Krafturinn er samt stillanlegur bara með því að snúa "byssuskaftinu" eða því, alveg frekar þægilegt. (Er kannski svoleiðis á öllum, hef bara prófað þessa einu háþrýstidælu)

Minnir að ég hafi séð límmiða frá "Rekstrarvörum" á dælunni hjá honum.

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 16:39
by Einarsss

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 17:25
by zazou
Arnarf wrote:Vinur minn á svona sem fer upp í 130bör minnir mig

Krafturinn er samt stillanlegur bara með því að snúa "byssuskaftinu" eða því, alveg frekar þægilegt. (Er kannski svoleiðis á öllum, hef bara prófað þessa einu háþrýstidælu)

Minnir að ég hafi séð límmiða frá "Rekstrarvörum" á dælunni hjá honum.

Það væri gaman að fá reynslusögur, sérstaklega um hve öflug græjan þarf að vera til þess að ná drullunni af bílnum, bæði á sumrin og veturna. Ég hef heyrt það að sumar þessar ódýrustu dælur dugi hreint út sagt ekki á bíla, eru hugsaðar í td húsa- og gangstéttaþrif.
Einn kunningi minn sprautaði víst lakkið af Citroëninum sínum með svona græju sem var 100-110bör. Reyndar galli í bílnum en vekur mann til umhugsunar.

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 17:31
by Arnarf
zazou wrote:

Já, maður notaði "aflmestu stillinguna" á felgurnar
Svo minnkaði maður þetta dáldið (alveg í eins og þetta er í hjá löður) þegar maður fór að sprauta á bílinn. Mjög þægilegt að geta gert það

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 17:33
by gunnar
Ekki úða bara mjög fast á lausa bletti, þar sem er byrjað að flagna á bílnum eða einhvað slíkt..

Og ekki heldur á skoðunamiðann... :oops:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 17:37
by íbbi_
ég var að vinna á yfir 500bara háþrýstidælu þegar ég var 16ára, þrif fyrir múr og flr, ef manni flipaðist eitthvað til þá skárust ú sundur heilu trén og grindverk og flr

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 17:42
by gunnar
íbbi_ wrote:ég var að vinna á yfir 500bara háþrýstidælu þegar ég var 16ára, þrif fyrir múr og flr, ef manni flipaðist eitthvað til þá skárust ú sundur heilu trén og grindverk og flr

Hef séð svona dælu fara á bakið á manni sem var í vinnugalla og hann bara rifnaði í sundur og bakið á honum hálf brann bara af.. Maður verður að passa sig með þessar græjur..

Tók allt skinnið af þumlinum af mér með 150 bara dælu hérna heima. Stórhættulegur anskoti.

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 19:09
by Turbo-
já árni fáðu þér 500bara dælu
það nærðu öllum skítnum af og kannski lakkinu líka

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 19:29
by Einsii
Það fylgir þeim flestum tveir stútar.. annar til að þrífa með og hinn til að húðfletta fólk.. neinei hinn er bara til að losa málingu og þannig.
Ekki nota hann á bílana ykkar !!!! :)

Annars eru 110 bör bara mjög fínt en annars finnst mér meira máli skipta hversu miklu vatni hún kemur frá sér á mínutu.
Minnir að þær séu ekki að skila nema kanski 5L/mín sem er mjög lítið, best væri að fá eitthvað í kringum 10-12 ef það er hægt (veit samt ekki hvað þær geta skilað miklu).
En til viðmiðunar þá eru svona blöndunartæki einsog menn setja oft upp í skúrnum fyrir slönguna að afkasta 20-30lítrum á mínúti. (Hitastírð tæki) Spindlatækin afkasta sennilega meiru.

Annars nota ég bara 110 bara dælu á felgurnar og Brunaslöngu á rest :twisted:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 19:44
by binnii
Menn eru að tala um 110-130 bör sé best fyrir bílþrifnað og annað , og já Landvélar eru með mjög fínar dælur á ekkert of mikinn pening , og helligns úrval af stútum/hausum líka

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 19:55
by íbbi_
Turbo- wrote:já árni fáðu þér 500bara dælu
það nærðu öllum skítnum af og kannski lakkinu líka

tja meðað við að þessi tók í sundur grindverk og alvöru tré( enga runna sko :lol: ) þá er ég nú viss um að þeir hefðu leikið mann verr,

fyrsta skiptið sem ég var að sprauta á henni sagði einmitt kallin.. sko þetta er 60hestöfl og yfir 500bör, "sko ef þú sprautar óvart á lappirnar á einhevrjum þá skerðu þær af.."

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 21:21
by ömmudriver
Hehe, jáá ég nota bara þessi 100 - 110 bör til þess að þrífa bílinn minn.

Svo var kraftmesta háþrýstidæla landsins hérna í Keflavík fyrir nokkrum árum bara svona sem dæmi um stærðargráðuna þá var hún geymd á trukk !
En ég heyrði einmitt af því að þegar þeir voru nýbúnir að fá dæluna þá voru þeir víst að háþrýstiþvo málninguna af eitthverjum bankanum hérna í kef og gerðu óvart gat í gegnum einn vegginn á bankanum :shock: Svona smá "úps" móment :lol:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 21:22
by arnibjorn
Jæja strákar...

Þó svo að ég hafi sett þetta í offtopic þá megið þið alveg halda þessu ON topic :lol:

Ég var að spurja um dælur til að nota á bíla... ekki til að rífa tré í sundur!

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 22:18
by Stanky
Prufaðu að fara í europris. Fín verkfæri þar til "heimilisnota".

Það eru líka dælur í rekstrarvörum, svo hef ég séð fínar í BYKO líka.

Annars þarf maður ekkert að þrífa bílinn sjálfann með háþrýstidælu á sumrin. Ég geri það allavega ekki.

Kveðja,
haukur