Page 1 of 2

Nýja útfærslan á bílnúmerunum

PostPosted: Tue 26. Jun 2007 23:33
by Ívar/320i
Hvernig líst mönnum á breytinguna sem er verið að gera á númerakerfinu? Förum að sjá þessa nýju útfærslu á götunum líklega eftir hádegið á morgun (27/6). Röðun stafa er eins og á sendiráðsnúmerunum
ss. AB-B12
Held að mörgum finnist þetta skrítið til að byrja með en svo náttla venst þetta eins og annað. Gallinn á þessu finnst mér að nýja númeraröðin gæti líkst of mikið númeraröð sem til er nú þegar.
Td. AB-012 EN í nýja kerfinu gæti orðið AB-O12 (abénúll og abo)

PostPosted: Tue 26. Jun 2007 23:38
by Vargur
Ha, á röðunin ekki að vera ABB-12 ?

PostPosted: Tue 26. Jun 2007 23:40
by Bjössi
Dúfan wrote:Ha, á röðunin ekki að vera ABB-12 ?


Júbb :)

..

PostPosted: Tue 26. Jun 2007 23:43
by Ívar/320i
Neibb röðunin er AB-C12 Það sem sýnt var í fréttum rúv var röng útfærsla.

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 00:07
by bjahja
Erum við samt búin að nota næstum því milljón númer?
Eða er ég að hugsa þetta vitlaust, 1000*32*32

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 00:08
by Aron Andrew
ég væri til í EE-E30 8)

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 00:37
by Berteh
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1276365
Með núverandi fyrirkomulagi gefst kostur á útgáfu samtals rúmlega hálfrar milljónar númera

:lol:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 01:18
by gstuning
bjahja wrote:Erum við samt búin að nota næstum því milljón númer?
Eða er ég að hugsa þetta vitlaust, 1000*32*32


akkúrat, þau segja að við séum búinn með um 400k númer,
það er ekki rétt, það er fullt af númera röðum sem eru ekki einu sinni í gildi

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 01:24
by maxel
djöfull vildi ég að þeir breyttu númerplötunum, núvernadi eru svo ljótar og klunnalegar, svo er gaman að gera tilbreytingu, og plz allaveganna svarta stafi ekki bláa

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 02:53
by IceDev
Pant ekki fá GAY-69 á bílinn minn

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 03:22
by Valdi-
IceDev wrote:Pant ekki fá GAY-69 á bílinn minn

Djöfull var ég að finna pottþétta afmælisgjöfina handa þér

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 06:56
by Alpina
IceDev wrote:Pant ekki fá GAY-69 á bílinn minn



hahahahaha :rollinglaugh:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 08:22
by Einarsss
maxel wrote:djöfull vildi ég að þeir breyttu númerplötunum, núvernadi eru svo ljótar og klunnalegar, svo er gaman að gera tilbreytingu, og plz allaveganna svarta stafi ekki bláa



Vertu feginn að við séum ekki með gular plötur eða verra. Finnst þær bara mjög smekklegar miðað við margt sem maður hefur séð

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 08:30
by fart
einarsss wrote:
maxel wrote:djöfull vildi ég að þeir breyttu númerplötunum, núvernadi eru svo ljótar og klunnalegar, svo er gaman að gera tilbreytingu, og plz allaveganna svarta stafi ekki bláa



Vertu feginn að við séum ekki með gular plötur eða verra. Finnst þær bara mjög smekklegar miðað við margt sem maður hefur séð


:argh: :burn:

Reyndar kemur gula platan ágætlega út á Grænum. :lol:

PostPosted: Wed 27. Jun 2007 08:55
by Einarsss
einhvern veginn bjóst ég við þessu kommenti frá þér þegar ég skrifaði þetta :lol: