by JonFreyr » Fri 22. Jun 2007 09:25
Það hefur lengi verið augljóst að hinn íslenski meðalmaður áttar sig ekki á því að valdið er hjá fólkinu, ekki hjá þingmanninum. Við erum armurinn og þingmaðurinn er verkfærið sem við stjórnum. Þegar að við kjósum svona óvita á þing að þá getum við sjálfum okkur um kennt að ákveðnu leyti, eitt augnablik ákváðum við að vera óskynsöm og "trúa" loforðum um bætt líf og betri kjör. Við höfum hins vegar möguleika á því að iðrast gjörða okkar, rétt eins og mótorhjólamaðurinn sem slaðaðist nú fyrir stuttu.....við getum flest verið sammála um að maðurinn iðrast gjörða sinna og hann tekur út sína refsingu með tíð og tíma.
Fólk sem hefur enga aðstöðu til að taka út þetta "stundarbrjálæði" mun að sjálfsögðu þurfa að stunda sínar "nauðgunaræfingar" á þeim stöðum sem í boði eru. Ég hef skrifað oft um þetta og hef alltaf verið því fylgjandi að akstursíþróttamönnum verði byggð aðstaða til að stunda sína íþrótt og umgangast aðra áhugamenn, nýlega nefndir hryðjuverkamenn.
Í dag, sem og undanfarin ár, er hafnarbakkinn og Sæbrautin það svæði sem íþróttafólkið okkar notar til æfinga og keppnishalds. Það er miður en valið er ekki okkar, verkfærin okkar eiga valið.....sama fólk sem við ákváðum að velja til stjórnarsetu, sama fólk sem við ákváðum að treysta í síðustu kosningum.
Virðingarfyllst, Jón....fyrrverandi vitleysingur.
Volvo 945 Túúúúúrbó