Ford GT tjónaður

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Ford GT tjónaður

Postby zazou » Thu 14. Jun 2007 17:54

Missti stjórn á 500 hestafla ofursportbíl sem endaði á umferðarskilti
Ökumaður sem sat undir stýri Ford GT sportbíl missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin endaði á umferðarskilti utanvegar. Ökumaðurinn, sem er starfsmaður Brimborgar sem á bifreiðina, var að ferja bílinn í þrif fyrir sýningu á bíladeginum sem verður haldinn 17. júní. Fram kemur á vef Brimborgar að sem betur fer hafi ekki orðið nein slys á fólki.

Á vef Brimborgar segir jafnframt að sportbíllinn hafi verið fluttur hingað til lands í þeim tilgangi að beina sjónum ökumanna að þeirri ábyrgð sem þeir beri sem stjórnendur ökutækis í umferðinni. Brimborg hafi frá upphafi lagt áherslu á markmið sitt í þessu sambandi undir slagorðinu „Beislum kraftinn af ábyrgð“.

„Brimborg hefur frá upphafi viðhaft mjög skýrar reglur um notkun Ford GT enda er hér um að ræða ofuröflugan og léttan sportbíl með yfir 500 hestafla vél, sem aka þarf með sérstakri varúð. Í umræddri ökuferð var ekki um hraðakstur að ræða heldur vankunnáttu á því gríðarlega afli sem bíllinn býr yfir, og vanmat á þeim aðstæðum sem fyrir hendi voru. Að þessu sinni var krafturinn því miður ekki beislaður af ábyrgð – með öðrum orðum nægilegri varfærni sem nauðsynleg er þegar um bíl er að ræða sem maður þekkir ekki og er að aka í fyrsta sinn. Ökumanni bílsins, starfsmanni Brimborgar, hefur þegar verið boðin áfallahjálp,“ segir á vef Brimborgar.


http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1274914
http://www.brimborg.is/Lestu-frettirnar/~/NewsID/772
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Aron Andrew » Thu 14. Jun 2007 18:06

Wúps :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Kristján Einar » Thu 14. Jun 2007 18:09

SVEKK!!!
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo
User avatar
Kristján Einar
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1442
Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21

Postby JonHrafn » Thu 14. Jun 2007 18:29

Honestly ... það er meira svekk að sjá e39 m5 tjónaðan. Þessi fimmhundruðhestaflaofursportbíll hefur aldrei kveikt í mér :D
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby zazou » Thu 14. Jun 2007 19:04

JonHrafn wrote:Honestly ... það er meira svekk að sjá e39 m5 tjónaðan. Þessi fimmhundruðhestaflaofursportbíll hefur aldrei kveikt í mér :D

Hmm, þessi er ca 50-70 sinnum sjaldgæfari hérlendis... :-k

Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd!

Leiðindar atvik engu að síður.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby iar » Thu 14. Jun 2007 19:16

zazou wrote:Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd!


Ætlaði einmitt að vekja athygli á þessu! :lol:

Greinilega bara BMW og aðrir ofursportbílar sem tekur að nefna... :wink:
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby zazou » Thu 14. Jun 2007 19:18

iar wrote:
zazou wrote:Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd!


Ætlaði einmitt að vekja athygli á þessu! :lol:

Greinilega bara BMW og aðrir ofursportbílar sem tekur að nefna... :wink:

Þá höfum við viðmið 8)
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Svenni Tiger » Thu 14. Jun 2007 19:46

hann er 550höhö og 3.6 í 100... finnst það bara bístna sprækt... ég fór btw til mónakó í síðustu viku og þar voru allir ofursportbílar sem hægt var að hugsa sér eins og bugatti veyron, ferrari enzo, slr mclaren, lamborghini diablo,murchielago,gallardo, og allt sem þið getið ýmindað ykkur ásamt fult af m6 og porsche 911 túrbo og ég verð að segja eins og er að þá tók maður eða horfði varla á kraftmesstu og flottustu bimmana, bensana og porsche-ana útaf öllum þessum lamboum, ferrarium og öllu þessu ofurdóti... :D :D :lol: þetta var gjeggjun... þa var bara eins og porsche væri corolla innan um þessa bíla þarna :o :shock:
BMW E39 M5 01' [2 FAST]
BMW 745i 02' [WISH]
Range Rover Sport Supercharged 06' [NR1DAD]
41 Other's Sold
User avatar
Svenni Tiger
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1257
Joined: Thu 21. Sep 2006 09:20
Location: Örugglega hlaupandi

Postby Einsii » Thu 14. Jun 2007 20:08

Samt skrítið að seigja að hann hafi verið að ferja hann í þvott.. því ég sá bílinn inn á Brimborg fyrr í dag, eitthvað seinna keyrir hann útúr bænum og svo alls ekki löngu seinna sé ég hann koma til baka sömu leið á kerri :D.
En já í þessa átt útúr bænum er næsta þvottaaðstaða á Dalvík ;)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby fart » Thu 14. Jun 2007 20:09

Þú ert drekinn... ha? hann kallaði mig bara dreka???!!!??

Rosalega fúlt að heyra því að ég veit að Agli var annt um bílinn, en þetta er alveg dæmalaust dæmigert. Það halda allir að þeir verði ofurbílstjórar við að setjast undir stýri á ofursportbíl.

Ég held að Ísland eigi HEIMSMET í tjónuðum ofurbílum miðað við höfðatölu og innflutta ofurbíla.

Benni og Widowmakerinn (sá eini sem hefur komið hingað)
Carrera GT (einn af 2)
Ford GT (eini)
Carrera 4S 997
maður gæti haldið lengi áfram...

Segir það manni eitthvað.. kanski eru vegirnir ekki nógu góðir, kanski er ekki nógu heitt, kanski eitthvað annað.

Hrikalega leiðinlegt að heyra þetta með Fordinn... Greyjið ökumaðurinn... stundum er betja að hemja sig í stað þess að reyna að búa til góða sögu og enda í blöðunum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Thu 14. Jun 2007 20:42

Þetta er leiðinda atvik en engin slasaðist þannig að nú er bara að laga hann og nýta sér svo þetta til að prómóta áfram "beisla kraftinn af ábyrgð"...

Efast ekki um að Egill tekur á þessu skynsamlega og heldur áfram að berjast fyrir öryggismálum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Thu 14. Jun 2007 20:43

bebecar wrote:Þetta er leiðinda atvik en engin slasaðist þannig að nú er bara að laga hann og nýta sér svo þetta til að prómóta áfram "beisla kraftinn af ábyrgð"...

Efast ekki um að Egill tekur á þessu skynsamlega og heldur áfram að berjast fyrir öryggismálum.


Vel mælt Ingvar.. auðvitað er þetta rétt hjá þér.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Svenni Tiger » Thu 14. Jun 2007 20:46

fart wrote:Þú ert drekinn... ha? hann kallaði mig bara dreka???!!!??

Rosalega fúlt að heyra því að ég veit að Agli var annt um bílinn, en þetta er alveg dæmalaust dæmigert. Það halda allir að þeir verði ofurbílstjórar við að setjast undir stýri á ofursportbíl.

Ég held að Ísland eigi HEIMSMET í tjónuðum ofurbílum miðað við höfðatölu og innflutta ofurbíla.

Benni og Widowmakerinn (sá eini sem hefur komið hingað)
Carrera GT (einn af 2)
Ford GT (eini)
Carrera 4S 997
maður gæti haldið lengi áfram...

Segir það manni eitthvað.. kanski eru vegirnir ekki nógu góðir, kanski er ekki nógu heitt, kanski eitthvað annað.

Hrikalega leiðinlegt að heyra þetta með Fordinn... Greyjið ökumaðurinn... stundum er betja að hemja sig í stað þess að reyna að búa til góða sögu og enda í blöðunum.


já íslenskir vegir ekki fyrir ofursportbíla
BMW E39 M5 01' [2 FAST]
BMW 745i 02' [WISH]
Range Rover Sport Supercharged 06' [NR1DAD]
41 Other's Sold
User avatar
Svenni Tiger
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1257
Joined: Thu 21. Sep 2006 09:20
Location: Örugglega hlaupandi

Postby bebecar » Thu 14. Jun 2007 21:02

Annars finnst mér Ford GT virkilega ljúfur bíll og meira einhvern veginn "real life" en margt eksótískara - og auðvitað er mun meiri eftirsjá í honum en nokkrum E39 M5 (þeir eiga þó alltaf framhaldslíf :lol: )
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Svenni Tiger » Thu 14. Jun 2007 21:08

og milljón sinnum dýrara a gera við hann
BMW E39 M5 01' [2 FAST]
BMW 745i 02' [WISH]
Range Rover Sport Supercharged 06' [NR1DAD]
41 Other's Sold
User avatar
Svenni Tiger
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1257
Joined: Thu 21. Sep 2006 09:20
Location: Örugglega hlaupandi

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 89 guests

cron