bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
911 GT3 RS https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=2249 |
Page 1 of 2 |
Author: | HelgiPalli [ Fri 08. Aug 2003 11:23 ] |
Post subject: | 911 GT3 RS |
![]() ![]() Nýji 911 GT3 RS - óþarflega retro þykir mér. Hann lítur út eins og 2.7RS eftir að hafa brunnið út sem rokkstjarna, farið í meðferð og safnað bumbu.. Liturinn á felgunum er viðbjóðslegur og röndin spillir honum endanlega. Ég er að spá í að fá mér frekar bara venjulegan GT3 ![]() |
Author: | HelgiPalli [ Fri 08. Aug 2003 11:26 ] |
Post subject: | |
Ehm. Ég sendi þetta reyndar inn í Almennar Umræður.. |
Author: | arnib [ Fri 08. Aug 2003 11:30 ] |
Post subject: | |
Þetta er ógeðslegt ... ![]() |
Author: | Mal3 [ Fri 08. Aug 2003 12:01 ] |
Post subject: | |
Hann minnir pínulítið á Johnny Rotten, nema Rotten viðurkennir að hann er sell-out. Annars væri gaman að finna rokkstjörnu sem var ung, spræk, falleg og hæfileikarík '72/'73 en er feit, ljót og lifir á fornri frægð í dag ![]() Reyndar er örugglega the shit að keyra þennan bíl, en ég tek hann án rauða trimmsins. Þetta var flott á 2,7 RS, 2,8 RSR og 3,2 CS en EKKI á þessum. Hafið þið annars tekið eftir því að aftan á GT3, undir vængnum, leynist svona lítill ducktail spoiler. Asnar. |
Author: | benzboy [ Fri 08. Aug 2003 12:03 ] |
Post subject: | |
Já já þetta væri allt í góðu ef þessar ógeðslegu rauðu klessur væru ekki með |
Author: | Mal3 [ Fri 08. Aug 2003 12:09 ] |
Post subject: | |
benzboy wrote: Já já þetta væri allt í góðu ef þessar ógeðslegu rauðu klessur væru ekki með
Mér finnst bara alltof illa unnin smáatriði í seinni 996 bílunum. Einu þeirra sem er verulega laglegir eru Turbo og Carrera 4S sem er aðallega vegna þess að þeir eru með mun stílhreinni framsvuntu. Hönnun hjá Porsche hefur hrakað því miður. Þeir eru of uppteknir af því að missa ekki niður "brand identity" frekar en að hanna fallega bíla. Hér áður fyrr var þetta identity ekkert atriði, en það má reyndar deila um fegurð eldri Porsche bíla, en mér finnst þeir flestir samt hafa sérstakan stíl og alls ekki ljótir. |
Author: | Hlynzi [ Fri 08. Aug 2003 22:27 ] |
Post subject: | |
Mér finnst nú þessar línur ásamt felgunum alveg taka flotta lúkkið burt frá bílnum. Ég horfði á þetta og fæ hræðilegt "flashback" frá Fast and the furios. |
Author: | Logi [ Sat 09. Aug 2003 00:54 ] |
Post subject: | |
Bara hafa felgurnar gráar og þá verður hann alveg FÍNN! Já takk einn fyrir mig.... |
Author: | Mal3 [ Sun 10. Aug 2003 01:32 ] |
Post subject: | |
E34 M5 wrote: Bara hafa felgurnar gráar og þá verður hann alveg FÍNN! Já takk einn fyrir mig....
Efast ekki um að þetta sé dúndurkerra, en hann verður víst bara boðinn í hvítu með rauðu eða bláu trimmi. Haarm Lagay verður að fara að taka lyfin sín aftur... |
Author: | Alpina [ Sun 10. Aug 2003 10:30 ] |
Post subject: | |
Mér finnst ágætt að halda í forna frægð........ Sv.H |
Author: | Mal3 [ Sun 10. Aug 2003 14:02 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Mér finnst ágætt að halda í forna frægð........
Sv.H Nei, en hvernig er það gert? Með því að gera það sama aftur eða taka djörf skref fram á við? Ætli BMW fari og geri M3 CSL "Batmobile" edition bráðum? |
Author: | Alpina [ Sun 10. Aug 2003 14:48 ] |
Post subject: | |
Þetta er nú skemmtilegt innlegg hjá ,,LOTUSBOY,,((((MAL3))) það væri nú örugglega hægt að selja eitthvað af BATMOBILE en eins og MAL3 nefnir réttilega þá er eflaust ekki sama hvernig nútiminn réttlætir nýjar útfærslur sem eru byggðar af gömlu útliti........ Sv.H |
Author: | Mal3 [ Sun 10. Aug 2003 15:55 ] |
Post subject: | |
Ég tek þessu nýja viðurnefni sem hrósi og sný út úr gömlum og gildum málshátt í því tilefni: Lotusness is next to godliness ![]() Ég er einmitt búinn að vera að pirra mig yfir því sem mér finnst misskilningur hjá útlitshönnuðum og bílaframleiðendum á orðinu arfleifð eða heritage á ensku. Sumir þessara virðast halda að það sé að halda í arfleifð að setja grill líkt því sem fannst á sportkappakstursbíl árið 1930 framan á ofurbíl fyrir 21. öldina. Aðrir virðast skilja arfleifð betur. Bristol var ekkert að velta fyrir sér hvort útlitið á nýja Fighter bílnum væri líkt öðrum bílum Bristol, þeir vissu að hann yrði sannur Bristol ef þeir myndu hanna bíl skv. sömu hugmyndum og áður. Framfarir í tækni hafa stundum þau áhrif að útfærsla á sömu hugmynd er gjörólík því sem áður hefði hentað. Peter Wheeler, eigandi TVR, skilur þetta líka. TVR snýst um að búa til bíla með gnótt afls, létta smíði og hráa eiginleika. Þannig hefur TVR aftur verið. Ef Wheeler færi að halda að það væri að halda uppi arfleifð að herma eftir útliti eldri bíla TVR fengjum við væntanlega fleiglaga blæjubíla. Í staðinn fáum við bíla sem eru jafn ólíkir og Tuscan, Cerbera, Tamora og T350C. Það er samt svipur með þeim og maður þekkir þá sem TVR, en það er bara ekki verið að eltast við að hafa sömu gimmick í útlitinu. Versta brot í þessu efni? Að reyna að láta jeppa líta út eins og Porsche 911... |
Author: | bebecar [ Mon 11. Aug 2003 10:46 ] |
Post subject: | |
LOL - I LIKE THIS LOOK A LOT! Hvítur á rauðum felgum - þetta er nógu eighties fyrir mig. |
Author: | Jss [ Tue 12. Aug 2003 00:36 ] |
Post subject: | |
Mér finnst hann ekki það slæmur, finnst hann alltaf fallegri í hvert skipti sem ég sé hann (myndina af honum). |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |