Page 1 of 1

Allt að gerast hjá Löggunni

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 14:29
by Frikki
Innlent | mbl.is | 24.4.2007 | 12:29
Lögreglubifreiðar með forgangsljós á þremur gatnamótum í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar á miðvikudag, fimmtudag og föstudag að staðsetja lögreglubifreiðar með kveikt á bláum og blikkandi forgangsljósum á þremur gatnamótum
í Reykjavík þar sem mikið er um umferðaróhöpp. Lögreglan hyggst vera áberandi meðan á alþjóðlegu umferðaröryggisvikunni stendur og leggja ríka áherslu á umferðareftirlit. (Veit ekki hversu rík þessi áhersla er samt :D )

Gatnamótin sem um ræðir eru Miklabraut/Kringlumýrarbraut,
Laugavegur/Suðurlandsbraut/Kringlumýrarbraut og Miklabraut/Grensásvegur.
Verður lögreglubifreiðunum komið fyrir á gatnamótunum fyrrnefnda daga frá klukkan 12-14 og 15.30-17.30.

Bara benda fólki á þetta..

Löggan er búin að vera alveg kreisí undanfarna daga, sá t.d. einhverja 4 bíla að mæla bara á
Reykjanesbraut frá Kaplakrika og að Smáralind um daginn.

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 14:33
by arnibjorn
Hehe hlaut að vera! Á leiðinni í skólann voru 3 löggubílar stopp við kringlumýrabrautina með svona kílómetra millibili. Ég skyldi ekki neitt í þessu!

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 14:41
by Einarsss
Þetta á eftir að valda fleiri árekstrum ef e-ð er ... Íslendingar verða að hægja vel á sér og horfa út um hliðargluggana þegar blikkandi ljós eru... hef séð nokkrar aftan á keyrslur við þessar aðstæður

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 15:09
by bjornvil
einarsss wrote:Þetta á eftir að valda fleiri árekstrum ef e-ð er ... Íslendingar verða að hægja vel á sér og horfa út um hliðargluggana þegar blikkandi ljós eru... hef séð nokkrar aftan á keyrslur við þessar aðstæður


Haha, ég lenti einmitt í því að keyra aftan á bíl á Hringbrautinni aðeins áður en maður kemur að hringtorginu við Suðurgötuna. Tvö lögregluhjól og einn bíll voru lagðir þarna í hliðargötu og lögregluþjónarnir stóðu þarna og voru eitthvaðað dóla. Ég góndi á þá og var að spá í hvað þeir væru að gera og lennti nett aftan á bíl með tilheyrandi dekkjavæli. Beint fyrir framan lögguna :) :slap:

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 15:10
by jens
Mér finst þetta gott framtak.

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 16:54
by Schulii
jens wrote:Mér finst þetta gott framtak.


Sammála!

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 19:14
by Frikki
arnibjorn wrote:Hehe hlaut að vera! Á leiðinni í skólann voru 3 löggubílar stopp við kringlumýrabrautina með svona kílómetra millibili. Ég skyldi ekki neitt í þessu!


heh? Þetta er byrjar sko á morgun :roll:

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 19:19
by HPH
Það voru alla vegna þrjár "Svartar maríur"(ford Ególæner) kringlumírar braut áðan.

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 19:57
by IceDev
Ertu þessir Econoliners með hraðamæla?

Ég hef aldrei verið stöðvaður af slíkum og einungis séð þá bösta eitthverja í fíkniefnaleit

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 20:16
by freysi
IceDev wrote:Ertu þessir Econoliners með hraðamæla?

Ég hef aldrei verið stöðvaður af slíkum og einungis séð þá bösta eitthverja í fíkniefnaleit


ég ætla nú rétt að vona að lögreglubílarnir séu nú allir búnir þeim búnaði :lol:

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 20:42
by IceDev
Ég bjóst nú við nákvæmlega þessu djóki

Þá á ég nú við Radarhraðamæla

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 20:56
by freysi
ég er nú nokkuð viss um að ecoline bílarnir séu ekki með radar

PostPosted: Tue 24. Apr 2007 20:58
by Stanky
freysi wrote:ég er nú nokkuð viss um að ecoline bílarnir séu ekki með radar


Held ekki sko...

Hef oft keyrt framhjá þeim þegar ég er að keyra of hratt miðað við skilti og aldrei pípir radarvarinn og aldrei snúa þeir við.