Innlent | mbl.is | 24.4.2007 | 12:29
Lögreglubifreiðar með forgangsljós á þremur gatnamótum í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar á miðvikudag, fimmtudag og föstudag að staðsetja lögreglubifreiðar með kveikt á
bláum og blikkandi forgangsljósum á þremur gatnamótum
í Reykjavík þar sem mikið er um umferðaróhöpp. Lögreglan hyggst vera áberandi meðan á alþjóðlegu umferðaröryggisvikunni stendur og
leggja ríka áherslu á umferðareftirlit. (Veit ekki hversu rík þessi áhersla er samt

)
Gatnamótin sem um ræðir eru Miklabraut/Kringlumýrarbraut,
Laugavegur/Suðurlandsbraut/Kringlumýrarbraut og Miklabraut/Grensásvegur.
Verður lögreglubifreiðunum komið fyrir á gatnamótunum fyrrnefnda daga frá klukkan 12-14 og 15.30-17.30.
Bara benda fólki á þetta..
Löggan er búin að vera alveg kreisí undanfarna daga, sá t.d. einhverja 4 bíla að mæla bara á
Reykjanesbraut frá Kaplakrika og að Smáralind um daginn.