bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bílasöluvesen https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=21535 |
Page 1 of 2 |
Author: | Chrome [ Tue 17. Apr 2007 19:12 ] |
Post subject: | Bílasöluvesen |
Sælir... Einn af mínum betri vinum er nú búinn að koma sér í soldin bobba, hann seldi "félaga" sínum bíl sem hann á. Félaginn segir honum að greiðslan komi í byrjun næstu viku fimtudag í síðastalagi (þetta er á föstudegi). Þeir gera með sér kaupsamning og ákv. að kaupandi sjái um umskráningu því hann segist þurfa pappírana fyrir lántöku eitthvað! svo keyrir þessi maður sína leið á bílnum. Svo líður tíminn og ekkert gerist, eftir nokkra daga næst í manninn og hann kemur með einhverja svaka sögu um að hann hafi lent inn á spítala og biður um frest, sem hann fær. Svo líður tíminn og ekkert gerist aftur, þegar að loks næst í hann þá segir hann að frændi konu sinnar hafi látist og þau séu að aðstoða við útförina, aftur er beðið um frest. Enn líður tíminn og ekkert gerist frekar en fyrri daginn, maðurinn svarar ekki símanum sínum eftir þetta þannig að ég er beðin um að koma með honum til þessa manns, nú þegar þangað er komið fáum við þvílíka ræðu um að einhvað fólk hafi verið að hringja í hann og hann hafi orðið svo reiður að hann hefði bara ákveðið að svara ekki. Eftir einhverjar viðræður segir maðurinn að lánið sé allt að ganga í gegn og verið svaka vesen með vitlaust reikningsnúmer og allur pakkinn og þetta verði komið í gegn á þriðjudag...þetta var orðið allt saman meira og minna gruggugt þegar þarna er að komið, þannig að við förum að athuga málin og auðvitað stendur ekki steinn yfir steini, og það sem meira er við komumst að því að hann er á vanskilaskrá! í dag fórum við aftur til hans og ákvað vinur minn að vera ekkert að minnast á það að við séum búnir að kanna þetta, allavega það mætir sama bullið okkur aftur og kallinn sármóðgaður yfir þessu öllu saman og finnst við vera að gera honum allt illt með því að vera að biðja um að fá að sjá eitthvað yfir þetta...og aftur labbar strákurinn tómhentur út... ...þetta er soldil klausa þið vonandi afsakið ![]() ![]() |
Author: | JOGA [ Tue 17. Apr 2007 19:31 ] |
Post subject: | |
Þarf ekki bara að sækja bílinn til þessa aðila og segja að hann geti fengið hann aftur ef hann geti reitt fram peninginn? |
Author: | Djofullinn [ Tue 17. Apr 2007 19:34 ] |
Post subject: | |
Stendur í afsalinu að hann eigi eftir að borga, eða hvenær hann hafi ætlað að borga? |
Author: | Daníel [ Tue 17. Apr 2007 19:37 ] |
Post subject: | |
Taka bílinn bara aftur einn tveir og þrír, ef gæinn vil ennþá kaupa hann þá skal hann bara greiða kaupverðið áður en bíllinn verður afhentur honum aftur. |
Author: | Chrome [ Tue 17. Apr 2007 20:04 ] |
Post subject: | |
Það er það sem ég er búinn að vera að segja honum, en því miður þá var bara tiltekinn upphæð á afsalinu en ekki dagsetning á greiðslu, sem gerir þetta heldur erfiðara að eiga við ![]() |
Author: | siggik1 [ Tue 17. Apr 2007 20:23 ] |
Post subject: | |
er búið að skipta um eigendur ? ef ekki þá bara sækja bílinn ... er ekki líka hægt að sanna að hann sé ekki búinn að borga ? |
Author: | Danni [ Tue 17. Apr 2007 20:29 ] |
Post subject: | |
Er hann búinn að skila inn eigandaskiptum? Ef hann er ekki búinn að því getur kaupandinn ekkert gert við hann. Mjög sniðugt að klára ALDREI eigandaskipti fyrr en bifreiðin hefur verið greidd að fullu. |
Author: | Chrome [ Tue 17. Apr 2007 20:34 ] |
Post subject: | |
Eigandaskiptin eru ekki gengin í gegn en strákurinn var það vitlaust að láta þennan "félaga" sinn hafa alla pappíra ![]() |
Author: | Danni [ Tue 17. Apr 2007 20:45 ] |
Post subject: | |
Chrome wrote: Eigandaskiptin eru ekki gengin í gegn en strákurinn var það vitlaust að láta þennan "félaga" sinn hafa alla pappíra
![]() Þá drífið þið ykkur niður í næstu skoðunarstöð eða umferðarstofu og skráið einhvern sem meðeiganda. Þá eru eigandaskiptablöðin sem kaupandi er með ÓGILD og hann getur bara borgað bílinn og ný eigandaskiptablöð verða gerð eða hann getur skilað honum. Auðveld leið til að leysa þetta og nýr meðeigandi er með enga aukna ábyrgð heldur verður bara að samþykkja söluna. Þessvegna er best að meðeigandi verður foreldri eða einhver sem seljandi treystir 200% |
Author: | Chrome [ Tue 17. Apr 2007 20:56 ] |
Post subject: | |
það var einmitt svipað því sem við vorum að spá spurninginn er bara hvernig það gengur uppá afsalið að gera |
Author: | Geirinn [ Tue 17. Apr 2007 20:57 ] |
Post subject: | |
Chrome wrote: það var einmitt svipað því sem við vorum að spá spurninginn er bara hvernig það gengur uppá afsalið að gera
Er afsalið undirritað af báðum aðilum ? |
Author: | Djofullinn [ Tue 17. Apr 2007 21:00 ] |
Post subject: | |
Setja bara handrukkara í þetta. Þá verður hann fljótur að borga ![]() |
Author: | Siggi H [ Tue 17. Apr 2007 21:06 ] |
Post subject: | |
hringdu bara í opus lögmenn. mæli með þeim. talar bara við Grím |
Author: | Kristjan [ Tue 17. Apr 2007 21:13 ] |
Post subject: | |
Siggi G wrote: hringdu bara í opus lögmenn. mæli með þeim. talar bara við Grím
Hver ætli hafi bent þér á þá? ![]() |
Author: | Siggi H [ Tue 17. Apr 2007 21:15 ] |
Post subject: | |
það varst þú ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |