bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Grænir skattar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=21522 |
Page 1 of 1 |
Author: | Knud [ Tue 17. Apr 2007 12:02 ] |
Post subject: | Grænir skattar |
Ég var að horfa á fréttirnar á stöð 2 um daginn og þá var frétt um græna skatta, sem sagt að auka skatt á bíla sem fara yfir ákveðna mengunarstaðla. Hvað gerir fornbílaklúbburinn t.d ef þetta fer í gegn? Er þetta en eitt peningaplottið? Mér finnst þetta ótrúlegt alveg og ekki fá þessir samþykkir þessum sköttum mitt atkvæði ![]() tekið beint af vísir.is: "Sjálfstæðisflokkurinn vill umbuna fólki fyrir umhverfisvænan lífstíl í stað þess að nota þennan málaflokk sem afsökun fyrir skattheimtu. Íslandshreyfingin, Samfylking og Vinstri grænir sögðu já og Samfylkingin telur að grænir skattar bæti samkeppnisstöðu nýrra lausna. Framsóknarflokkurinn segir hagræna hvata betri til árangurs en skatta, Frjálslyndir telja hugsanlegt að skatta mengunarvalda sem fara yfir sett mengunarmörk og Baráttusamtökin tala um grænar dagssektir ef mengunarvarnarbúnaður fyrirtækja er ófullnægjandi." |
Author: | fart [ Tue 17. Apr 2007 12:03 ] |
Post subject: | |
Þetta er ekkert sér-íslenskt dæmi. Evrópa er að kafna í þessum sköttum nú þegar. |
Author: | Stanky [ Tue 17. Apr 2007 12:08 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta persónulega fínt framtak. Maður þarf ekki 5,7ltr ford f350 til að fara út í bónus og kaupa í matinn. Margir kaupa sér svona kraftmikla bíla (eins og margir á kraftinum) og nota þá sem hobbýbíla -> keyra hann á sumrin. Það sem mér finnst að það ætti að gera fyrst er að fyrirtækjabílar verði hybrid. Það myndi minnka mengun til muna. |
Author: | Djofullinn [ Tue 17. Apr 2007 12:15 ] |
Post subject: | |
En ættu þá ekki skattar að lækka á móti á öðrum bílum? Ef það yrði gert væri þetta fínt |
Author: | Knud [ Tue 17. Apr 2007 12:16 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: En ættu þá ekki skattar að lækka á móti á öðrum bílum?
Ef það yrði gert væri þetta fínt ágætis punktur hjá þér |
Author: | gstuning [ Tue 17. Apr 2007 12:22 ] |
Post subject: | |
Mér finnst persónulega bara fyndið hvað fólk er að spenda í einhverja trukka til að vera á innanbæjar einungis, Nokkuð augljóst hvað fólk eyddi endurfjármögnunni sinni í síðustu árin. |
Author: | Einarsss [ Tue 17. Apr 2007 12:38 ] |
Post subject: | |
já... það er svo fyndið að sjá fólk á einhverjum svaka pickup truck og það eina sem það notar hann í er að keyra í vinnuna og til baka. Ábyggilega fáranlega há prósenta sem á svona bíla og hefur nákvæmlega engan tilgang með því að eiga hann ... gæti alveg eins átt yaris sem uppfyllir sömukröfur |
Author: | zazou [ Tue 17. Apr 2007 13:57 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Þetta er ekkert sér-íslenskt dæmi. Evrópa er að kafna í þessum sköttum nú þegar. Eru þessir skattar afturvirkir? einarsss wrote: já... það er svo fyndið að sjá fólk á einhverjum svaka pickup truck og það eina sem það notar hann í er að keyra í vinnuna og til baka.
Ábyggilega fáranlega há prósenta sem á svona bíla og hefur nákvæmlega engan tilgang með því að eiga hann ... gæti alveg eins átt yaris sem uppfyllir sömukröfur Ég bíð eftir kommenti frá asíska látúnsbarkanum ![]() |
Author: | Freyr Gauti [ Tue 17. Apr 2007 14:56 ] |
Post subject: | |
Er nokkuð verið að tala um bíla í þessu frumvarpi? Er ekki verið að meina sektir á fyrirtæki? |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 17. Apr 2007 15:58 ] |
Post subject: | |
hmm.. hefur sýna hnökkra líka.. t.d. eigum við feðgar saman Ford explorer.. hann er breyttur á 46 tommu dekkjum, með 5.8V8 vél og allt það.. hann er notaðir í 3 ferðar á ári annars er hann geymdur inn í skúr.. hann er líka á fornbílaskráningu þannig að við borgum lítið af honum og getum því haft hann sem leiktæki sem tekið er úr þegar það er "gott" veður.. yrði frekar asnalegt að fara að borga af honum auka mengunarskatt þegar hann mengar margfalt minna á ári en yaris í daglegum akstri.. |
Author: | fart [ Tue 17. Apr 2007 17:20 ] |
Post subject: | |
Nei skattarnir eru ekki afturvirkir hérna, en þeir eiga bara eftir að hækka. Það fáránlega við skatta sem byggjast á eyðslu er það sama og er fáránlegt við að borga meiri toll fyrir stærri mótor eða hærri birfreiðagjöld fyrir stærri bíl... því þessir skattar segja ekkert til um hvað bíllinn er mikið notaður. Auðvitað ættu öll gjöd að miðast við notkun bílsins, því að bíll sem stendur kyrr mengar ekkert, og bíll sem stendur kyrr eyðir engum vegum. |
Author: | íbbi_ [ Tue 17. Apr 2007 19:08 ] |
Post subject: | |
ég bara ´skil ekki hvað fólk þarf alltaf að vera tuða yfir því að menn kauði sér stóra pallbíla.. meiga menn ekki eiga það sem þeir vilja? meina sumir fíla þessa bíla og þetta er þeirra hobbý rétt eins og við sumir erum á bílum sem komast hratt.. ég hef ekki orðið var við að ég fái aldrei stæði af því að einhver pickup hafi lagt í öll stæðin í bænum.. og ´´eg reyndar sjálfur hef mjög gaman af sona pikkum, finnst þeir flottir og mjög gaman að keyra þá, og ætti eflaust einn sveran ef ég hefði efni á því, og þætti nú hálf fúlt ef ég mætti það ekki, ég vel 10 sinnum meiri hættu á camaronum mínum út í umferðini |
Author: | Schulii [ Tue 17. Apr 2007 22:42 ] |
Post subject: | |
Þetta hefur ekkert með hættu að gera. Þetta er sjálfsagt klisjað en við erum bara að rústa þessum hnetti með eigingjarnri hegðun og það er bara verið að gera eitthvað í því. Þýðir ekkert að segja "já, skelfilegt hvernig þetta lítur út með þessa jökla sem eru að bráðna og eiga eftir að setja fullt af borgum á kaf en ég er bara ekki til í að láta þetta hafa áhrif á budduna mína neitt, ég vill bara fá mína skemmtun og ekki leggja neitt af mörkum!!!" En jújú, eflaust eru einhverjir vankantar eins og Fart bendir á en það verður bara að þróast og allt það. Ég er allavega hlynntur þessu og það eina sem gerist er að maður stendur bara frammi fyrir valkosti. Er ég tilbúinn til að borga þetta fyrir að eiga svona bíl! |
Author: | íbbi_ [ Tue 17. Apr 2007 23:35 ] |
Post subject: | |
jájá það er engin lýgi að mitt álit er eigingjarnt og óálitlegt, engu síður veit ég bara hvað ég hef á milli handana og hvað mig langar í |
Author: | JonFreyr [ Wed 18. Apr 2007 17:09 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þessi hugmynd vera frekar kjánaleg. Mitt álit. Væri ekki mikið frekar að fella niður tolla og aðflutningsgjöld af umhverfisvænum bílum? Þeir væru þá á viðráðanlegu verði. Markaðurinn er bara þannig í dag að bílaframleiðendur eru að smíða stórar og eldsneytisfrekar vélar fyrir ákveðinn markaðshóp og sá hópur hefur stækkað undanfarin ár. Mér finnst sniðugara að hafa þetta eins og þungaskattinn forðum, fast krónugjald á hvern kílómetra. Setja ákveðin mengunarmörk og þegar yfir viðmiðið er komið að þá skal greiða kílómetragjald. Þetta eru bara mín 2 cent, finnst bara hrikalega vitlaust að hérna eigi að drulla niður álverum með allri þeirri mengum sem þeim fylgir á meðan bíleigendum er refsað fyrir að menga. Öll þessi umræða um nær mengunarfrí álver er alveg komin út fyrir öll velsæmismörk. Hvergi er tekin inn í þetta umgjörðin, flutningur til og frá álveri og sú orka sem fer í að keyra áfram reksturinn í kringum ál-iðnaðinn. Er fólk kannski að gera sér grillur um að súrálið komi syndandi til landsins og syndi svo tilbaka sem fullvaxnir og umhverfisvænir álklumpar að vinnslu lokinni? Hvernig væri að koma upp almennilegu strætókerfi, jafnvel rafmagnslestum á milli bæjarfélaga áður en við hengjum almenning fyrir að eiga einkabifreið? Þetta eru nágrannalöndin að gera og hafa gert í fleiri herrans ár, getum við ekki apað þetta eftir þeim eins og flest annað? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |