Page 1 of 1

Bjórpæling.

PostPosted: Fri 13. Apr 2007 22:11
by Kristjan
Ég er að drekka Carlsberg, nýkominn frá köben og þar er allt annað bragð af honum.

Nú spyr ég, er íslenska vatnið ekki að breyta bjórnum heilmikið þar sem hann er upphaflega bruggaður með dönsku vatni. Þar að leiðandi er uppskriftinni breytt með því að nota það íslenska, ég er ekki að segja að það eigi að fara að flytja inn danskt vatn en mér fannst hann allt öðruvísi og jafnvel betri úti.



önnur useless pæling
Carlsberg nafnið er btw byggt á því að nafni sonar eiganda brugghússins var skeytt saman við hæðina sem brugghúsið stendur á, þar sem danir kalla allt Berg (fjall) sem er hærra en 30 metrar yfir sjávarmáli.

PostPosted: Fri 13. Apr 2007 22:19
by gunnar
Ég tengist Vífilfelli frekar mikið, og ég veit að bruggmeistarinn hjá þeim gerir þetta örlítið öðruvísi en úti. Auðvitað er notað annað vatn en mixtúran er eitthvað örlítið öðruvísi.

Carlsberg Export er betri finnst mér.

PostPosted: Fri 13. Apr 2007 22:22
by Kristjan
Ég veit að hver bruggmeistari gerir hlutina nokkurn veginn eftir sínu höfði en ég hélt að þeir þyrftu að fylgja eftir uppskriftunum til þess að halda leyfinu.

PostPosted: Fri 13. Apr 2007 22:29
by Jón Ragnar
Væri til í að vera bruggmeistari...

Frekar svalt starfsheiti 8)

PostPosted: Fri 13. Apr 2007 23:46
by Helgi M
Jón Ragnar wrote:Væri til í að vera bruggmeistari...

Frekar svalt starfsheiti 8)


Hingað til hefur verið nógu mikið stolt að vera bara í smökkunardeildinni :drunk: :lol:

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 01:51
by Omar
þar sem danir kalla allt Berg (fjall)


reyndar er fjall: bjerg en það er annað.

en þetta er alveg rett hjá þér með vatnið, vatnið er svo hreint herna á Íslandi og þess vegna verður bjórinn aldrei góður.
Man við vorum eitthvað að ræða einmitt það í efnafræði tíma einhvern tíman snemma í menntaskóla.

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 03:34
by pallorri
Ég var einmitt að ræða við frænda minn um daginn sem hefur búið síðastliðin 5-6 ár í Kaupmannahöfn (Virkilega mikill bjórmaður) og honum fannst sjálfum Carlsberg betri hérna á Íslandi heldur en í Danaveldinu sjálfu.

Er nú samt þeirrar skoðunar að bjórinn sé almennt betri úti :)

Kv - Palli

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 08:42
by Stanky
Image


Image


besti bjór sem ég hef keypt á íslandi :)

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 09:48
by xtract-
mer finnst carlsberg a islandi bara mjoooog godur :)

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 15:15
by pallorri
Stanky wrote:http://www.beermania.be/beer_images/leff_blonde.jpg

http://www.bartofcafe.dk/Leffebrun.jpg

besti bjór sem ég hef keypt á íslandi :)


Geri ráð fyrir því að þú hafir komið til Belgíu? 8)

Kv - Palli

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 16:25
by Stanky
pallorri wrote:
Stanky wrote:http://www.beermania.be/beer_images/leff_blonde.jpg

http://www.bartofcafe.dk/Leffebrun.jpg

besti bjór sem ég hef keypt á íslandi :)


Geri ráð fyrir því að þú hafir komið til Belgíu? 8)

Kv - Palli


Tjah, já... átti heima í frakklandi við landamæri belgíu í næstum ár :)

PostPosted: Tue 17. Apr 2007 17:58
by basten
Heineken á dælu finnst mér mjög góður, en það er víst ekki hægt að fá hann hér þar sem hann er innfluttur :(

PostPosted: Wed 18. Apr 2007 01:38
by Omar
Image
Sá ALLRA besti :!: :twisted:

einu bjórarnir sem nokkurn tíman gætu náð sömu hæðum eru
Image
Image
og svo er
Image
svalandi inn á milli


Skulum ekki ganga svo langt að segja að carlsberg sé góður, heldur "ágætur til síns brúks"

PostPosted: Wed 18. Apr 2007 02:24
by Angelic0-
Ég læt nú bara Stelluna og Grolsch duga hér heima ;)

en belgískur bjór er bjóra bestur sbr;

Pierlala, Leffe og svo auðvitað þann fína Chimay ;)

Chimay er helst til væminn.. enda talinn vera "Fínn" bjór ;)

Pierlala er ferskur og svalandi og Leffe'nn er svona "nagla-bjór" :)

PostPosted: Wed 18. Apr 2007 10:26
by Stanky
AHhhh....

Hoegaarden er svo ótrúlega svalandi..... betra en kók þegar maður var lítill á sólríkum degi!

Hoegaarden + glas + sítróna - mafakk :D