Page 1 of 1

Clarkson traustur....

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 17:41
by bimmer
Malasía hatar Jeremy Clarkson

Það væri óráðlegt fyrir Jeremy Clarkson að fara til Malasíu, á næstunni. Clarkson stýrir hinum geysivinsæla bílaþætti Top Gear á sjónvarpsstöðinni BBC. Ástæðan fyrir hatri Malasíubúa á Jeremy er sú að hann tók í þætti sínum fyrir bílinn Perodua Kelesa, sem er framleiddur í Malasíu. Mamma mía.

Eftir reynsluakstur réðst hann á bílinn með sleggju og barði hann sundur og saman. Svo lét hann hífa hann upp í krana og sprengdi hann í tætlur með dýnamíti. Líklega hefði það dugað til þess að Malasíubúar vissu hvað hann var að fara.

En Clarkson lét sér það ekki nægja. Hann bætti því við að þetta fyrirbæri hlyti að vera smíðað af frumskógarfólki sem notaði pálmablöð fyrir skó. Málið hefur verið tekið fyrir á þinginu í Malasíu. Og þar var EKKI talað um að gera Jeremy Clarkson að heiðursborgara.


http://www.visir.is/article/20070407/FRETTIR02/70407060

http://www.youtube.com/watch?v=Tf3Rw8VW3aE

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 17:50
by íbbi_
HAHAHAHAHA

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 17:58
by zazou
Ekkert smá góður, ég var svo sammála honum. Reyndar hefði mátt sleppa rasistakommentunum.

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 18:39
by Aron Andrew
Hahaha hann er svo grófur :lol:

PostPosted: Sun 08. Apr 2007 19:28
by zazou
Aron Andrew wrote:Hahaha hann er svo grófur :lol:

Hann kemur því sem flestir hugsa í orð :wink:

PostPosted: Mon 09. Apr 2007 10:58
by JOGA
:lol:

Hefði viljað sjá betur svipinn á gaurunum í umboðinu þegar hann byrjar að slá bílinn með sleggju.